Aðalheiður og Top Reiter sigra Meistaradeild Líflands
Ótrúlegu tímabili Meistaradeildar Líflands er nú lokið og hefur keppnin verið æsispennandi nú í vetur og var ekki neitt öðruvísi uppi á teningnum í kvöld. Eftir úrslit í tölti var ljóst að baráttan yrði á milli Aðalheiðar Önnu og Árna Björns í einstaklingskeppninni. Árni Björn var einu stigi á undan eftir töltið og ljóst að úrslit myndu ráðast í skeiðinu. Til að sigra einstaklinskeppnina þurfti annað þeirra einfaldlega að fara hraðar í gegnum höllina. Hið ólíklega átti sér stað! Þau fóru á sama tíma eða 5.66 sek. í gegnum höllina. En þar sem Aðalheiður átti betri annan tíma hlaut hún 3. sætið í skeiðinu og Árni 4. sætið. Þá voru þau orðin jöfn að stigum í efsta sæti með 39 stig. En þar sem Aðalheiður hefur verið oftar á palli í vetur sigrar hún einstaklingskeppni Meistaradeildar Líflands 2023. Það var svo Konráð Valur Sveinsson sem lenti í 3. sæti með 32 stig.
Liðakeppnin var ekki síður spennandi. Lið Hjarðartúns leiddi keppnina fyrir skeiðið en það var lið Top Reiter sem sigraði liðakeppnina nokkuð örugglega í skeiðinu og náði með því að vera efst að stigum en jöfn liði Hjarðartúns með 366. Þannig að eins og í einstaklingskeppninni voru leikar jafnir og horfa þurfti til sigra liðanna í vetur. Það var því lið Top Reiter sem sigrar liðakeppni Meistaradeildar Líflands 2023.
Nánari úrslit stigakeppninnar má nálganst HÉR.


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH