Þorrablót Fáks á laugardaginn
Já það verða súrir pungar, súrmatur, hangikjöt, saltkjöt, harðfiskur, svið og allur almennur og góður þorramatur á boðstólum á Þorrablóti Fáks…
að ógleymdum sætum pungum og gellum sem mæta á svæðið. Einnig verður boðið upp á guðaveigar í fljótandi formi.
Eftir góðan útreiðartúr á laugardaginn er tilvalið að skella sér á Þorrahlaðborðið hjá Fáki sem verður í félagsheimili Fáks þann 15. janúar. Húsið opnar kl. 17:00 og stendur veislan fram eftir kvöldi. Harmonikkuleikur, matur, söngur og gleði – hvað er hægt að hugsa sér það betra.
Aðgangseyrir á Þorrahlaðborðið er aðeins kr. 3.000 og frítt fyrir 12 ára og yngri
Allir velkomnir á Þorrablót hjá Fáki.
Þorranefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH