Hólaskóli óskar eftir hrossum
Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild annast undir handleiðslu reiðkennara skólans.
Haustönninni er skipt upp í tvö tímabil. Hið fyrra stendur nú yfir og lýkur með skilasýningu þann 18. október. Síðara tímabilið hefst að því loknu, eða mánudaginn 20. október og stendur til 13. desember.
Kallað er eftir hrossum í þessi verkefni á síðara tímabili haustannar:
Grunnþjálfun. Í grunnþjálfun er megináhersla lögð á að gera hrossin góð í beisli, þjálfa samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, sem og gangsetningu. Enn fremur uppbyggingu þreks, jafvægis og vilja.
Forkröfur: Grunnþjálfunin er framhald frumtamningar. Trippin skulu vera vel reiðfær utan dyra og teymast vel með manni.
Þjálfun. Fyrir tamin hross á 5. -12. vetri af öllu tagi en þó eru ekki tekin gölluð hross eða hættuleg. Við komuna á staðinn þurfa þau að vera í lágmarksþjálfun. Viðfangsefni námskeiðsins er alhliða þjálfun reiðhests með áherslu á bætta svörun ábendinga, jafnvægi, hreyfingar og rými á öllum gangtegundum.
Forkröfur: Hrossin þurfa að vera heilbrigð og laus við galla, svo sem slægð, hrekki, húslesti eða áberandi viðkvæmni eða kaldlyndi.
Til að tíminn nýtist sem best, þurfa hrossin að vera orðin heyjuð, auk þess að koma járnuð og vera í a.m.k. léttri þjálfun.
Kostnaður – fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr.75.000.
Innifalið: Allt uppihald, auk járninga (ef við á) og ormalyfsgjafar. Þeim sem hafa hug á að koma að hrossum í eitthvert þessara námskeiða, er bent á að leggja inn pöntun sem allra fyrst. Pantanir skulu skráðar í þetta eyðublað hér .