Viti til afnota að Þingeyrum
Stóðhesturinn Viti frá Kagaðarhóli kemur að Þingeyrum í A-Hún. eftir Landsmót og verður þar til afnota út sumarið að er fram kemur í tilkynningu frá Þingeyrum.
„Viti frá Kagaðarhóli – IS2007156418 – er 4 vetra brúnstjörnóttur undan Smára frá Skagaströnd og Óperu frá Dvergsstöðum sem er dóttir Kveiks frá Miðsitju. Hann hlaut í kynbótadómi á Vindheimamelum nýverið 8,02 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,05 þar af 8,5 fyrir háls og herðar og 9,0 fyrir bak og lend. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,00 þar af 9,0 fyrir tölt og hægt tölt, 8,5 fyrir brokk, 9,0 fyrir vilja og geðslag og 9,0 fyrir fegurð í reið. Verð á fengna hryssu er 80 þús + vsk. Vinsamlega pantið pláss með því að senda tölvupóst á netfangið: [email protected] eða í síma 895-4365. Þeir sem þegar hafa pantað eru beðnir að staðfesta pöntun. Einungis 20 merar verða hjá hestinum á hverjum tíma.
Nánari upplýsingar hjá Gunnari á Þingeyrum í síma 895-4365.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH