Hestaþing og Landsmótsúrtaka
Hestaþing Snæfellings og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Kaldármelum annan í Hvítasunnu, mánudaginn 13. júní. Dagskrá hefst kl. 10.
„Dagskrá: (háð nægri þátttöku í öllum flokkum)
Forkeppni
Byrjendaflokkur fullorðinna, keppt verður í B-flokki gæðinga, keppni stjórnað af þul.
Pollaflokkur, bæði keppt í flokki polla þar sem er teymt og án teyminga. Allir fá þátttökuverðlaun.
B-flokkur gæðinga: Opinn flokkur og minna keppnisvanir, barna-unglinga- og ungmennaflokkar.
A-flokkur gæðinga: Opinn flokkur og minna keppnisvanir.
Tölt: 17 árs og yngri, opinn flokkur fullorðinna og minna keppnisvanir fullorðnir. Byrjendaflokkur fullorðinna.
Úrslit
B-flokkur: Barna-, unglinga- og ungmennaflokkar. Minna keppnisvanir, byrjendur fullorðinna og opinn flokkur fullorðinna.
A-flokkur: Opinn flokkur og minna keppnisvanir.
Tölt: 17 ára og yngri, opinn flokkur og minna keppnisvanir, byrjendaflokkur fullorðinna.
100m skeið: skráning á staðnum, skráningargjald kr. 3000 á hest, sigurvegari fær 1/3 skráningargjalda í verðlaun.
Skráningar fara fram með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]
Við skráningu þarf kennitölu knapa, skráningarnúmer hests og upp á hvora hönd knapi vill hefja keppni.
Skráningargjald er 2.000 kr. fyrir hverja skráningu í öllum flokkum nema í skeiði, barna- og unglingaflokki, en þar er skráningargjaldið kr. 500 fyrir hverja skráningu.
Skráningargjöld þarf að greiða fyrir lok skráningartíma inn á reikning 0191 26 2876, kt 440992-2189 og senda kvittun á [email protected]
Tekið er við skráningum til þriðjudagsins 7. júní kl. 16,“ segir í tilkynningu frá stjórn Snæfellings
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH