Svellkaldar konur 12. mars nk.
Hið vinsæla ístöltsmót kvenna „Svellkaldar konur“ hefur verið dagsett og mun fara fram í Skautahöllinni í Laugardal laugardaginn 12. mars nk…
Keppt verður í þremur flokkum að venju, Minna vönum, Meira vönum og Opnum flokki. Vegna mikilla vinsælda verður aðeins hægt að skrá einn hest á knapa, en 100 pláss eru í boði. Verði eitthvað eftir af plássum þegar skráningarfrestur rennur út mun mótsstjórn ákvarða hvernig þeim verður ráðstafað. Þetta mót hefur verið eitt af þeim flottustu undanfarin ár, mikill áhugi á þátttöku, flottir hestar og knapar og vegleg verðlaun. Allur ágóði af mótinu rennur sem fyrr til íslenska landsliðsins í hestaíþróttum.
Hestamenn eru hvattir til að taka daginn strax frá því um stórsýningu verður að ræða! Nánar verður fjallað um mótið þegar nær dregur og skráning hefst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH