Útskriftarhátið Reiðmannsins var haldin 1. maí

  • 3. maí 2023
  • Fréttir
Útskriftarhátíð í Reiðmanninum l og ll sem er nám á vegum Endurmenntunar LBHÍ

Þann fyrsta Maí var haldin útskriftarhátíð í Reiðmanninum l og ll sem er nám á vegum Endurmenntunar LBHÍ og er ætlað fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vill auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi en ekki síður fyrir þá reiðmenn sem vilja fara í þá vinnu að eflast sem manneskjur.

Reiðmaðurinn er haldinn um land allt og komu sjö reiðmannshópar saman á Mið-Fossum í hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands og fögnuðu tímamótunum ásamt því að keppt var um Reynisbikarinn en Reynir Aðalsteinsson tamningameistari var upphafsmaður námsins og hefur það notið mikilla vinsælda í áraraðir.

Fjölmennt var á útskriftarhátíðinni sem fram fór í góðu veðri og voru á þriðja hundrað manns sem mættu til að taka þátt í deginum og fagna útskriftarlokum hjá tæplega 100 nemendum. Á haustönn luku eining 50 til viðbótar framhaldsnámi Reiðmannsins.

Tveir nemendur fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í bóklegu og verklegu námi í Reiðmanninum. Í Reiðmanninum I hlaut Helena Rut Arnarsdóttir viðurkenningu og í Reiðmanninum II var það Guðrún Margrét Steingrímsdóttir sem hlaut viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.

Viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur Reiðmanninum 1, Helena Rut Arnarsdóttir og Guðrún Margrét Steingrímsdóttir, Reiðmanninum II

Keppt var um Reynisbikarinn og voru sex nemendur í Reiðmanninum II sem hæst stóðu yfir landið sem fengu tækifæri til að sýna prógrömm sín og keppa um bikarinn. Í ár stóð uppi sem sigurvegari Guðmundur Árnason og hampaði Reynisbikarnum.

Sæti Reiðmaðurinn 2 Niðurstöður
1 Guðmundur Árnason 8,6
2 Björn Ragnar Morthens 8,46
6 Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir 8,26
5 Elka Halldórsdóttir 8,21
3 Inga Þórey Ingólfsdóttir 8,13
4 Elísabet Gunnarsdóttir 8,1

Einnig kepptu níu hæstu nemendur af fyrsta ári með prógrömm sín á hestum sínum. Þar stóð uppi sem sigurvegari Sigríður Fjóla Viktorsdóttir.

Sæti Nemandi Niðurstöður
1 Sigríður Fjóla Viktorsdóttir 9
2 Magnús Karl Gylfason 8,71
3 Bryndís Gylfadóttir 8,63
4 Steinunn Guðbjörnsdóttir 8,35
5 Tinna Dögg Kjartansdóttir 8,23
6 Anna Berg Samúelsdóttir 8,19
7 Hrafn Einarsson 8,14
8 Guðrún Hanna Kristjánsdóttir 8,05
9 Stefanía Malen Stefánsdóttir 7,77

Á útskriftardeginum var einnig keppt í gæðingatölti og gátu allir nemendur Reiðmannsins skráð sig til þátttöku. Tæplega 45 voru skráðir til leiks og var boðið upp á tvo flokka, einn flokk fyrir meira vana og annan flokk fyrir minna vana. Úrslit í gæðingatölti urðu eftirfarandi:

1. flokkur, meira vanir
1.sæti Birting frá Birkihlið, knapi Magnús Karl Gylfason 8.583
2.sæti Svörður frá Arnarstöðum, knapi Guðmundur Arnason 8.55
3.sæti Hrafn frá Ferjukoti, knapi Hrafn Einarsson 8.492
4.sæti Eldur frá Borgarnesi knapi Ólafur Guðmundson 8.467
5.sæti Prins frá Syðra- Skörðugili knapi Fjóla Viktorsdóttir 8.342
6.sæti Dáti frá Húsavik knapi Katrín Von Gunnarsdóttir( 8.408 )( missti skeifu í a-úrslitum)
7.sæti Snilld frá Hlíð knapi Guðrún Hanna Kristjánsdóttir 8.3
8. sæti Hekla frá Leifsstöðum knapi Stefan Bjartur Stefánsson 8.283
9. sæti Dimmir frá Hvítanesi knapi Ísak Andri Ármannsson 8.275
10. sæti Kjalar frá Kili knapi Inga Ingólfsdóttir 8.033

Gæðingatölt meira vanir

2. flokkur, minna vanir.
1.sæti Myrkvi frá Geitaskarði knapi Sigurður Örn Ágústsson 8.517
2.sæti Tinna frá Lækjarbakka 2 knapi Svanheiður Lóa Rafnsdóttir 8.408
3.sæti Kóróna frá Birkihlið, knapi Bryndís Gylfadóttir 8.358
4.sæti Kvika frá Fákshólum knapi Halldóra Jónasdóttir 8.325
5.sæti Brák frá Vatnshömrum knapi Rósa Björk Valdimarsdóttir8.242
6.sæti Náttfari frá Lindarholti knapi Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir8.233
7.sæti Feykir frá Móabergi knapi Atli Rafn Sigurðarson 8.225
8.sæti Fiðla frá Einiholti knapi Grímur Valdimarsson 8.2
9.sæti Hugur frá Eystra-Hól knapi Steinunn Guðbjörnsdóttir 8.192
10.sæti Eyvi frá Hvammi lll knapi Solveig Pálmadóttir 8.142

A úrslit gæðingatölt minna vanir

Egilsstaða hópurinn og Haukur Bjarnason reiðkennari

Kópavogur 1. Reiðkennari var Ásta Björnsdóttir

Sauðárkrókur 1 og Finnbogi Bjarnason reiðkennari

Akureyrar hópurinn ll. Reiðkennari var Erlingur Ingvarson

Selfoss hópurinn ll. Reiðkennarar voru Hanna Rún Ingibergsdóttir og Hjörvar Ágústsson

Kópavogur ll og reiðkennarinn Hjörvar Ágústsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar