A-flokkur, Ómur í risatölur
Hinrik Bragason átti stórgóða sýningu á Ómi frá Kvistum rétt í þessu í undanrásum A-flokks gæðinga. Þeir fóru í 8,96…
og leiða keppnina. Margir góðir koma seinna en þessa tölu fer enginn í án þess að eiga frábært „show“ Ómur var góður bæði á tölti og brokki, hreingengur, hreyfingamikill og rúmur og svo átti hann feiknagóðan skeiðsprett. Spennandi verður að fylgjast með framhaldinu
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH