Opið gæðingamót Funa 16. og 18. júní.

  • 8. júní 2023
  • Fréttir
Skráningarfrestur rennur út á miðnætti 14. júní.

Opið gæðingamót Funa verður haldið dagana 16. og 18. júní. Föstudaginn 16. júní kl. 18.00 verða kappreiðar og töltkeppni á Melgerðismelum.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Tölt T1
  • Tölt T3
  • 150 metra skeið
  • 250 metra skeið
  • 300 metra brokk
  • 300 metra stökk

Sunnudaginn 18. júní verður svo gæðingakeppni og úrtaka fyrir fjórðungsmót.

  • Keppt í þessum flokkum:
  • A – flokkur
  • B – flokkur
  • Ungmennaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Barnaflokkur
  • 100 metra skeið

Allar greinar eru opnar.

Keppnisgjöld:

  • Hringvallagreinar 4.000 nema börn og unglingar 2.500
  • Kappreiðar 3.000

Skráning fer fram í Sportfeng og skráningarfrestur rennur út á miðnætti 14. júní.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka eða fella niður greinar ef ekki fæst næg þátttaka.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link