Fjórðungsmót Austurlands Keppendur þurfa ekki að mæta í úrtöku fyrir FM

  • 9. júní 2023
  • Fréttir
Undanþága frá reglu um val hrossa og keppenda á Fjórðungsmóti 2023

Hestamannafélög sem eiga aðild að Fjórðungsmóti Austurlands 2023 hafa nú heimild til þess að velja sína fulltrúa á mótið án undangenginnar úrtöku hjá félögunum. Samkvæmt reglum verða félög að halda úrtöku til að knapar öðlis keppnisrétt á Lands- og fjórðungsmótum en veitt hefur verið undanþága frá þeirri reglu.

Þessi undanþága á reglu 5 í reglugerð um Lands- og fjórðungsmót er veitt eftir að keppnisnefnd Landssambands hestamannafélaga barst erindi frá mótshöldurum Fjórðungsmóts Austurlands 2023 um undanþágu frá reglunni. Keppnisnefnd tók undir sjónarmið umsækjenda og beindi því til afgreiðslu stjórnar LH að veita undanþágu frá áðurnefndri reglu og samþykkti stjórn LH erindið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link