Frá Meistaradeild – Málning / Ganghestar

  • 21. janúar 2011
  • Fréttir
Frá Meistaradeild - Málning / Ganghestar

Fimmta liðið sem við kynnum til leiks er lið Málningar / Ganghesta. Þar er Sigurður Vignir Matthíasson liðsstjóri eins og áður. Aðrir í liðinu eru Anna Valdimarsdóttir, John Kristinn Sigurjónsson og Valdimar Bergstað.

Sigurður Vignir Matthíasson, liðsstjóri, rekur alhliða hestamiðstöð, Ganghesta, á Fákssvæðinu ásamt eiginkonu sinni. Sigurður hefur verið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu bæði á heimsmeistaramótum og Norðurlandamótum. Hann er margfaldur heims- og Íslandsmeistari, Landsmótssigurvegari og mætti lengi telja áfram.

Anna Valdimarsdóttir rekur alhliða hestamiðstöð á Fákssvæðinu ásamt eiginmanni sínum en þau voru búsett í Þýskalandi um árabil en eru nú komin heim aftur. Anna er þýskur meistari og hefur verið í íslenska landsliðinu bæði á heimsmeistaramótum og Norðurlandamótum.

 

John Kristinn Sigurjónsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla.

Hann starfar við tamningar að Ármóti. John hefur verið að gera góða hluti í keppni og kynbótasýningum á undanförnum árum.

Valdimar Bergstað er áhugaknapi úr hestamannafélaginu Fáki. Hann hefur verið í íslenska landsliðinu á heimsmeistara- og Norðurlandamótum. Hann er margfaldur Íslandsmeistari, heimsmeistari, landsmótssigurvegari ásamt mörgum öðrum stórum sigrum.

Málning var stofnuð 1953. Fyrirtækið framleiðir og selur málningu og er leiðandi á því sviði á Íslandi. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt áherslu á vöruþróun og rannsóknir og er í samstarfi við erlenda framleiðendur eins og Jotun í Noregi og Bona Keml í Svíþjóð. Innlend vöruþróun fyrir hinar séríslensku aðstæður er samt grunnurinn að flestum vörum félagsins.

Ganghestar ehf. er alhliða hestamiðstöð þar sem boðið er upp á hefðbundna þjónustu við hestafólk, kaup og sölu á hrossum, reiðkennslu, frumtamningar og þjálfun á kynbóta- og keppnishrossum. Eigendur fyrirtækisins eru Sigurður Vignir Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir. Ganghestar ehf. er með aðsetur að Fákabóli 3 á félagssvæði Fáks og er starfsemi í gangi þar allan ársins hring.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link