Gullmótið: Hinrik og Glymur á toppnum
Þá er fyrri umferð í fimmgangi lokið á úrtökumóti fyrir Heimsmeistaramótið í Austurríki. Það eru þeir Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal sem standa efstir með einkunnina 7,27.
Í öðru sæti er Árni Björn Pálsson á Aris frá Akureyri með einkunnina
7,07 og fast á hæla honum kemur Reynir Aðalsteinsson á Sikli frá Sigmundarstöðum með einkunnina 7,03.
Í ungmennaflokki stendur efstur Kári Steinsson á Funa frá Hóli með einkunnina 6,43.
Næst á dagskrá er keppni í fjórgangi og hefst hann klukkan 14:30.
Hér að neðan eru niðurstöður úr fyrri umferð:
1 Hinrik Bragason / Glymur frá Flekkudal 7,27
2 Árni Björn Pálsson / Aris frá Akureyri 7,07
3 Reynir Aðalsteinsson / Sikill frá Sigmundarstöðum 7,03
4 Viðar Ingólfsson / Aspar frá Fróni 6,60
5 Edda Rún Ragnarsdóttir / Hreimur frá Fornusöndum 6,57
6 Kári Steinsson / Funi frá Hóli 6,43
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH