Bandaríska liðið klárt fyrir HM

  • 12. júní 2023
  • Fréttir
Bandaríkin senda sex knapa á Heimsmeistaramótið

Heimsmeistaramótið verður haldið í Oirschot í Hollandi dagana 8. – 13. ágúst. Öll aðildarlönd FEIF hafa rétt á að senda lið á mótið sem innihalda allt að 7 pörum í fullorðinsflokk og síðan allt að fimm ungmenni, kynbótahross og ákveðin fjöldi varaknapa/hrossa.

Bandaríkin eru búin að velja sitt lið. Úrtaka var haldin samhliða USIHC Virtual Spring Show. Knapar sem voru valdir í bandaríska liðið mega keppa í hvaða grein sem svo lengi sem þeir kepptu í henni í úrtökunni. Knaparnir sem voru valdir í liðið í fimmgangi mega keppa í hvaða skeiðgrein sem þeir vilja á Heimsmeistaramótinu.

Knapar í bandaríska liðinu eru eftirfarandi: 

Laura Benson (Slaktaumatölt T2 = 7.03)
Fleur Brown (Tölt T1 = 6.57)
Caeli Cavanagh (Slaktaumatölt T2 = 6.53 og fimmgangur F1 = 6.47)
Asta Covert (Tölt T1 = 6.73 og fjórgangur V1 = 6.8)
Alex Dannenmann (Tölt T1 = 6.73 og fjórgangur V1 = 6.73)
Jenny Melville (Slaktaumatölt T2 = 6.73 og fjórgangur V1 = 6.2)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link