Til minningar um Göran Montan

  • 13. júní 2023
  • Fréttir
Föstudaginn 9. júní síðastliðinn féll hinn sænski merkismaður Göran Montan frá 77. ára að aldri. Hann var atkvæðamikill í Íslandshestamennskunni um áratuga skeið og vann ötullega að framgangi íslenska hestsins á alþjóðlegum vettvangi.

Hann var um tíma formaður sænsku Íslandshestasamtakanna (s. Svenska Islandshästförbundet) og einn af máttarstólpunum í því félagsstarfi. Hann byggði upp búgarðinn Margaretehof sem er miðstöð íslandshestamennsku í suður-Svíþjóð, þar er aðstaða góð og margar kynbótasýningar og keppnir á íslenskum hestum hafa verið haldnar og um árabil var þar rekinn öflug tamningastöð. Þá byggði hann upp hinn glæsilega búgarð Margrétarhof að Króki í Ásahreppi þar sem Reynir Örn Pálmason og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir starfa og er það ein glæsilegasta aðstaða á Íslandi.

Hann var lengi einn af stærstu hluthöfum í Eiðfaxa og er ein af helstu ástæðum þess að Eiðfaxi öðlaðist framhaldslíf. „Þegar Eiðfaxi var kominn í þrot um mitt ár 2002, tóku þrír aðilar höndum saman um að bjarga tímaritinu og fréttavefnum, sem þeir töldu vera meðal hornsteina hestamennskunnar í landinu og stöðu íslenskra hesta í heiminum.“ (Eiðfaxi 3.tbl. 2004.)

Göran var vel liðinn stjórnmálamaður í Svíþjóð fyrst á sveitarstjórnarstigi og síðar sem alþingismaður fyrir Sænska Hægriflokkurinn (s. Moderata samlingspartiet), systurflokk Sjálfstæðisflokksins á Íslandi, á árunum 2006-2014. Í starfi sínu sem alþingismaður hélt hann m.a. varnarræðu í sænska þinginu um Ísland í kjölfar bankahrunsins.

Göran Montan hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2017 í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands til Svíþjóðar, var honum veittur sá heiður m.a. vegna starfa hans um framgöngu íslenska hestsins í Evrópu sem og á Íslandi.

Eiðfaxi vottar fjölskyldu, vinum og vandamönnum Görans Montan sína dýpstu samúð, hvíldu í friði.

Göran Montan með riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu ásamt honum er á myndinni Estrid Brekkan, Sendiherra Íslands í Svíþjóð.

Göran Montan með riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu ásamt honum er á myndinni Estrid Brekkan, Sendiherra Íslands í Svíþjóð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link