Húni skiptir um eigendur
Húni hlaut 8,76 fyrir sköpulag, þar af 9,5 fyrir háls, herðar og bóga og samræmi. Sýnandi Helga Una Björnsdóttir
Húni frá Ragnheiðarsstöðum hefur nú bæst í stóðhestahóp þeirra Flemming og Gitte Fast Lambertsen en þau eiga einnig þá Viðar frá Skör, Kveik frá Stangarlæk, Hnokka frá Eylandi og Styrk frá Leysingjastöðum svo einhverjir sé nefndir.
Húni vakti athygli á Landsmótinu í fyrra en þar var hann sýndur af Helgu Unu Björnsdóttur í flokki fjögurra vetra stóðhesta. Húni var svo sýndur aftur á Hellu í síðustu viku þar sem hann fór í feikna dóm en hann hlaut 8,52 í aðaleinkunn, þar af 8,76 fyrir sköpulag og 8,38 fyrir hæfileika. Hann fékk 9,5 fyrir brokk, fegurð í reið, samræmi og háls, herðar og bóga og 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Húni er undan Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum og Hendingu frá Úlfsstöðum en ræktandi er Helgi Jón Harðarson.
Samkvæmt heimildum Eiðfaxa verður hesturinn áfram á Íslandi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH