Glæsilegir vinningar
Skráning í fullum gangi á Áhugamannamót Íslands. Hrímnir/Lífland gefa hnakka í öll fyrstu sætin, Icelandairhotels gefur gistingu fyrir 2 í annað sætið og fleiri glæsilegir vinningar. Dregnir verða fjórir heppnir keppendur sem ekki komust í úrslit, þrír hljóta gistingu hjá Icelandairhotels og einn hlýtur hnakk að launum.
Skráning stendur yfir á Áhugamannamót Íslands en mótið er að sjálfsögðu opið öllum áhugamönnum.
Keppnisgreinar:
Tölt T3
Tölt T4
Tölt T7
Fimmgangur F2
Fjórgangur V2
Fjórgangur V5
Gæðingaskeið
100 m skeið
Skráning fer fram á heimasíðu Geysis hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi og lýkur þriðjudaginn 14.júlí kl 23:59. Skráningargjald 4000 kr. og greiðist samhliða skráningu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH