Skeiðmót á Hellu í kvöld

  • 20. júní 2023
  • Tilkynning
Skráning á mótið er til hádegis

Þriðjudagskvöldið 20. júní fer fram skeiðmót á Rangárbökkum kl. 20:00. Upphaf skeiðmótsins stýrist af því hvenær kynbótasýningum dagsins lýkur, ef kynbótasýning dregst á langinn þá hefst mótið um leið og sýningum lýkur. Keppt verður í 250m, 150m og 100m skeiði.

Búið er að opna fyrir skráningar í Sportfeng. Skráningarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 20. júní. Skráningargjald er 5.000 kr.

Árangur sem næst á mótinu gildir til þátttöku á Íslandsmóti í hestaíþróttum sé lágmörkum náð. Fyrirspurnir vegna skráninga sendist á [email protected] eða hafið samband við Sóley í s: 8677460.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link