Skráning á Reykjavíkurmót Fáks
Reykjavíkurmót Fáks verður haldið 5. – 8. ágúst nk. Skráning á mótið fer fram í Reiðhöllinni og í síma miðvikudagskvöldið 28. júlí kl. 19:00 – 21:00, en einnig verður tekið á móti skráningum á netfangið [email protected] Skráningargjald er kr. 3.000 á grein í barna- og unglingaflokki en kr. 4.000 í ungmenna- og fullorðinsflokkum. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og flokkum ef næg þátttaka næst en annars verða flokkar sameinaðir.
Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests, keppnisgrein, flokkur og upp á hvora hönd er riðið í hringvallagreinunum. Þeir sem hringja eða senda póst þurfa að láta kortanúmer fylgja.
Símar til að hringja í á miðvikudagskvöldið eru:
- 898-8445
- 567-0100
- 578-2655
- 898-2017
Kveðja frá mótanefnd Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH