Breytt lágmörk í skeiðgreinum

  • 21. júní 2023
  • Fréttir
Búið að breyta lágmörkum í skeiðgreinum fyrir Íslandsmót fullorðinna og ungmenna.

Nú hafa öll mót sem gilda til lágmarka inn á Íslandsmót í hestaíþróttum farið fram og skráningarfrestur á Íslandsmótið liðinn. LH hefur sent frá sér tilkynningu þar sem ákveðið hefur verið að breyta lágmörkunum í skeiðgreinum;

„Árangur í hringvallargreinum og gæðingaskeiði hefur verið góður hjá fjölda knapa og fjöldi keppnispara sem náðu lágmörkum inn á mótið alveg í samræmi við áætlanir um stærð mótsins. Skeiðgreinar hafa þó í vor liðið fyrir kulda og slæm veður og því hafa tímar í skeiði ekki verið alveg á pari við meðalár. Keppnisnefnd hefur því breytt lágmörkum í skeiði og skráning á Íslandsmót fyrir þá knapa og hesta sem náð hafa tímum samkvæmt þessum nýju lágmörkum hefur verið framlengd til miðnættis í kvöld 21. Júní,“ segir í tilkynningunni.

P2 100 m skeið 8,0 sek

P3 150 m skeið 15,4 sek

P1 250 m skeið 24,8 sek

Skráning fer fram á Sportfeng en komi upp einhver villa við kortagreiðslu skal senda tölvupóst á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link