Gunnarsvaka
Gunnarsvaka verður haldin í safna- og menningarhúsinu “Halldórsfjósi” á Hvanneyri fimmtudagskvöldið 29. mars n.k. og hefst kl. 20.
Fram koma þjóðþekktir sagnaþulir og spaugarar sem flestir þekktu Gunnar af eigin raun sem nemendur hans frá Hvanneyri. Má þar nefna snillinga eins og Guðna Ágústsson, Sigga Sæm, Einar á Skörðugili og Valda Roy. Einnig láta ljós sitt skína menningarvitar eins og Gísli Einarsson og Bjarni safnstjóri á Hvanneyri auk þess sem karlakórinn Söngbræður kemur fram eins og hann leggur sig. Léttar veitingar í boði og léttur aðgangseyrir sem allur rennur í sjóð til að reisa minnisvarða á vori komanda til heiðurs hinum mikla meistara.
Eitt er víst – þetta verður ekki leiðinlegt!
Gunnar Bjarnason þekkja allir hestamenn. Hann var fremstur meðal jafningja í að skapa hið stórkostlega ævintýri um Íslenska hestinn. Hann kynnti hestinn um lönd og álfur, beitti sér fyrir stofnun Landssambands hestamanna og skipulagði fyrsta Landsmótið á Þingvöllum 1950 auk þess að stofna FEIF, alþjóðasamtök um íslenska hestinn, ásamt félögum sínum í Evrópu. Hann var hrossaræktarráðunautur og kennari á Hvanneyri um árabil. Nemendur hans minnast hans sem hugmyndaríks og drífandi kennara sem átti það til að tala af slíkum eldmóði að nærstaddir tókust á loft. Í tímum var yfirleitt ekkert talað um það sem stóð í kennsluheftinu en menn lærðu samt. Hann var sagnaþulur af guðs náð.
Takið kvöldið frá – þessu má bara enginn missa af!
Velkomin að Hvanneyri
Hollvinir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH