Sigríður og Ylfa Íslandsmeistarar í flugskeiði

Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir er Íslandsmeistari í 100 m. skeiði í ungmennaflokki á Ylfu frá Miðengi. Frábærir sprettir hjá krökkunum en Sigríður og Ylfa fóru 100 m. á 7,34 sek. og Jón Ársæll og Rikki frá Stóru-Gröf enduðu í öðru sæti með tímann 7,37. Þriðji var Kristófer Darri Sigurðsson á Gnúp frá Dallandi með tímann 7,67 sek.
100 m. skeið – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Ylfa frá Miðengi 7,34
2 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri 7,37
3 Kristófer Darri Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 7,67
4 Þórey Þula Helgadóttir Þótti frá Hvammi I 7,72
5 Þórgunnur Þórarinsdóttir Gullbrá frá Lóni 7,73
6 Benedikt Ólafsson Leira-Björk frá Naustum III 7,78
7 Þorvaldur Logi Einarsson Skíma frá Syðra-Langholti 4 7,86
8 Sigurður Baldur Ríkharðsson Hrafnkatla frá Ólafsbergi 8,20
9 Elín Þórdís Pálsdóttir Vörður frá Hafnarfirði 8,68
10 Sigrún Högna Tómasdóttir Storð frá Torfunesi 0,00