Öflugt reiðkennaralið á Hólum í vetur

  • 3. júlí 2023
  • Fréttir
Tíu ár eru frá því að Hestafræðideild Háskólans á Hólum fór að bjóða upp á BS nám í reiðmennsku og reiðkennslu

Í vor brautskráðust 15 einstaklingar frá Háskólanum á Hólum með BS gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu. Námið er fjölbreytt og veitir færni á mörgum sviðum er viðkemur hestamennsku eins og keppnisþjálfun, reiðkennslu, tamningu og þjálfun. Tíu ár eru frá því að Hestafræðideild Háskólans á Hólum fór að bjóða upp á BS nám í reiðmennsku og reiðkennslu og hefur deildin brautskráð á bilinu 15 -20 nemendur á hverju vori.
Hestamennska er alþjóðleg og skipar íslenski hesturinn mikilvægan sess í þeim heimi vegna uppruna síns og hæfileika. Á tímum upplýsingaóreiðu sem æ oftar skýtur upp kollinum í kringum atvinnugreinar og tómstundir þar sem dýr koma við sögu er víðtæk fræðsla mikilvæg. Þar spilar þekking og færni einstaklinga sem koma að greininni mikilvægt hlutverk. Með því náum við að halda umræðinnu á faglegum nótum í kringum hestamennskuna með velferð hestsins að leiðarljósi.

Næsta haust lítur vel út, úrval góðra skólahesta sjaldan verið meira. Til viðbótar við Svein Ragnarsson, Guðrúnu Stefánsdóttur, Elisabeth Jansen og Víking Gunnarsson, hefur Sigríður Bjarnadóttir verið ráðin í starf akademísks starfsmanns. Sigríður hefur víðtæka reynslu á fræðasviði hestamennsku og búfjárræktar. Þær breytingar sem orðið hafa á reiðkennurum skólans eru þær að Þórarinn Eymundsson hefur tekið við deildarstjórastöðu tímabundið en mun að auki sinna reiðkennarastarfi. Til viðbótar hefur Atli Guðmundsson verið ráðinn til deildarinnar til næstu tveggja ára. Atli er einn af okkar fremstu og reynslumenstu reiðkennurum. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, bættist einnig við reiðkennarahópinn en Heiðrún hefur víðtæka reynslu af þjálfun og reiðkennslu. Þau Þorsteinn Björnsson, Klara Sveinbjörnsdóttir, Sigurður Heiðar Birgisson og Ingunn Ingólfsdóttir verða á sínum stað. Eftir áramótin munu svo Mette Mannseth og Ísólfur Líndal Þórisson snúa aftur til kennslu.

Umsóknafrestur fyrir skólaárið 2023-24 er til og með 1. ágúst nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link