Fjórðungsmót Austurlands Arnhildur hlaut reiðmennskuverðlaun FT

  • 9. júlí 2023
  • Fréttir
Félag Tamningamanna veitti á Fjórðungsmótinu Reiðmennskuverðlaun FT.

Verðlaunin eru viðurkenning þar sem saman fer framúrskarandi reiðmennska, áverkalausir hestar og prúð framkoma á mótinu í heild sinni. Að því tilefni veitist okkur sá heiður að fá Pétur Behrens einn af stofnendum og máttarstólpum félagsins í gegnum tíðina til að veita verðlaunin.

Arnhildur Helgadóttir hlýtur Reiðmennskuverðlaun FT. Hún reið hryssunni Völu frá Hjarðartúni til sigurs í töltkeppni mótsins, reiðmennska hennar einkennist af fágun og krafti, þar sem riðið er til fyllstu afkasta. Hún er afar kurteis og prúð innan vallar sem utan. Hryssan ber henni gott vitni hversu vel þjálfuð og undirbúin hún er, líkt og önnur hross sem hún hefur þjálfað og undirbúið fyrir kynbóta og keppnisbrautina síðast liðinn ár.

Til hamingju Arnhildur þú ert vel að þessum verðlaunum komin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link