Danmörk Danska landsliðið klárt

  • 9. júlí 2023
  • Fréttir

Frá vinstri: Søren Madsen, Steffi Svendsen, Dennis Hedebo Johansen, Natalie Fischer, Frederikke Stougård, Anne Frank Andresen, Sys Pilegaard, Julie Christiansen og Jón Stenild. Myndir: Andreas Hejndorf

Danir tefla fram feikna sterku liði á Heimsmeistaramótið í ágúst

Danska meistaramótinu lauk í dag og var í leiðinni tilkynnt hverjir munu keppa fyrir hönd Danmerkur á Heimsmeistaramótinu í Oirschot í Hollandi í ágúst. Vel staðið að þessu hjá Dönum og gaman að sjá landsliðið tilkynnt að móti loknu. Sjö knapar í fullorðinsflokki voru valdir og fimm ungmenni auk þess eru í liðinu tveir ríkjandi heimsmeistarar.

Það er nefnd innan danska Íslandshestasambandsins sem velur knapana og eru þeir með fyrirfram ákveðnar kröfur sem knaparnir þurfa að standast en HÉR er hægt að lesa allt um það hvernig Danir standa að valinu í liðið.

 

 

Fullorðnir

  • Julie Christiansen – ríkjandi heimsmeistari í slaktaumatölti
  • Jon Stenild – ríkjandi heimsmeistari í fimmgangi
  • Sys Pilegaard og Abel from Tyrevoldsdal. Valin vegna árangurs í tölt T1
  • Anne Frank Andresen og Vökull frá Leirubakka. Valin vegna árangurs í fimmgangi  F1 og samanlögðum fimmgangsgreinar
  • Frederikke Stougård og Austri frá Úlfsstöðum. Valin vegna árangurs í fjórgangi, tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum
  • Natalie Fischer og Ímnir from Egeskov. Valin vegna árangurs í 250 m. og 100 m. skeiði.
  • Dennis Hedebo Johansen og Muni fra Bendstrup. Valin vegna árangurs í fjórgangi, tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum
  • Steffi Svendsen og Saga fra Teland. Valin vegna árangurs í gæðingaskeiði
  • Søren Madsen og Skinfaxi fra Lysholm. Valin vegna árangurs í fimmgangi, gæðingaskeiði og samanlögðum fimmgangsgreinum.
  • Varahross/knapi/par: Charlotte Cook 0g Gæfa frá Bessastöðum og Duld frá Ytra-Dalsgerði.
  • Varahross/knapi/par: : Alberte Smith og Arnar from Store Skovgaard.

 

 

Ungmenni

  • Amanda Frandsen og Tinna frá Litlalandi. Valin vegna árangurs í fjórgangi, tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum.
  • Molly Emilie Ejlersen og Meyvant frá Feti. Valin vegna árangurs í slaktaumatölti
  • Freja Løvgreen og Fjölvi from Hedegaard. Valin vegna árangurs í 100 m. skeiði, 250 m. skeiði og gæðingaskeiði.
  • Signe Kaave og Reynir frá Margrétarhofi. Valin vegna árangurs í tölti
  • Rebecca Hesselbjerg Taulborg og Tindra fra Kirstineholm. Valin vegna árangurs í gæðingaskeiði, 250 m. skeiði og samanlögðum fimmgangsgreinum
  • Til vara: Júlía Guðmundsdóttir og Baldi frá Feti. Valin vegna árangurs í slaktaumatölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum.

F.v.: Amanda Frandsen, Freja Løvgreen, Molly Emilie Ejlersen, Signe Kaave and Rebecca Hesselbjerg Taulborg

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link