Noregur Norska landsliðið klárt

  • 9. júlí 2023
  • Fréttir
Norðmenn tefla fram átta fullorðnum og fimm ungmennum.

Líkt og Danir nýta Norðmenn Norska meistaramótið til að kynna landslið sitt fyrir Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst.

Lona Sneve er ríkjandi heimsmeistari í 250 m. skeiðið í ungmennaflokki en keppir nú sem fullorðin og á hestinum Orra från Ekåsgården. Þau hafa verið að keppa í fimmgangi og gæðingaskeiði. Aðrir fullorðnir í liðinu eru

  • Anne Stine Haugen og Hæmir frá Hyldsbæk – valin vegna árangurs í fjórgangi
  • Caroline Wangen og Ógn frá Bessastöðum – valin vegna árangurs í 100 m. skeiði
  • Erik Andersen og Farsæll frá Midtlund – valin vegna árangurs í fimmgangi og gæðingaskeiði
  • Agnes Helga Helgadóttir og Sigur fra Jakobsgården – valin vegna árangurs í tölti og fjórgangi
  • Gabrielle Severinsen og Tígull frá Kleiva – valin vegna árangurs í tölti
  • Christina Lund og Lukku-Blesi frá Selfossi – valin vegna árangurs í fjórgangi og slaktaumatölti
  • Nils Christian Larsen og Gustur vom Kronshof – valin vegna árangurs í fimmgangi
  • Til vara Nils Christian Larsen og Flaumur frá Sólvangi og Carolin Storebø og Arnviður frá Hveragerði.

Ungmenni

  • Lill Kristen Gilja og Loki fra Tyse vegna árangurs í 100 m. skeiði, 250 m. skeiði og gæðingaskeiði
  • Louisa Husby Sem og Bakkus fra Grundet Hus vegna árangurs í tölti og fjórgangi
  • Maria Gjellestad Bosvik og Tindur fra Jakobsgården vegna árangurs í tölti og fjórgangi
  • Frøydis Musdalslien og Kormákur frá Miðhrauni vegna árangurs í slaktaumatölti og fjórgangi
  • Idunn Pedersen og Solon fra Lysholm vegna árangurs í fimmgangi, gæðingaskeiði og 100 m. skeiði
  • Til vara: Herman Gundersen og Dimmalimm fra Midtlund

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link