Finnland Niðurstöður frá Finnska meistaramótinu

  • 10. júlí 2023
  • Fréttir

Heidi Poukkanen og Isadora Myndir: Johanna Vaurio-Teräväinen.

Finnska meistaramótið var haldið um helgina í Ypäjä. Um 103 skráningar voru á mótinu en mótssvæðið er nýuppgert. 

Nýtt finnskt met var sett á mótinu í 100 m. skeiði en ungmennið Gerda-Eerika Viinanen og Svala frá Minni-Borg unnu greinina með tímann 7,68 sek. og bættu sitt eigið met sem var 7,70 sek. „Þetta var frábært. Ég hélt ekki að við myndum slá met í dag en Svala var mjög fljót,“ sagði Gerda-Eerika eftir sigurinn. Þær settu einnig nýtt met í 250 m. skeiði þegar þær fóru á tímanum 23,35 sek. en fyrra metið var 23,37 sek.

Gerda-Eerika Viinanen og Svala frá Minni-Borg

Á sunnudeginum voru riðin úrslit. Heidi Poukkanen á Ísadóru frá Efra-Hvoli vann tölt og fjórgang en eftir sigurinn í fjórgangi sagði Heidi; „það var frábært að ríða fyrir alla þessa áhorfendur. Þetta var sigur sem við höfðum beðið eftir.“

Úrslitin í tölti T1 í fullorðinsflokki voru afar spennandi en eftir öll þrjú atriðin voru þær efstar Martta Uusitalo á Glampa frá Auðsholtshjáleigu og Matisse Brummel á Braga frá Ytri-Skógum með 6,22 í einkunn. Það þurfti því sætaröðun dómara til að skera úr um sigurvegarann. Leikar fóru þannig að Martta Uusitalo á Glampa urðu finnskir meistarar í tölti. „Glampi var loksins farinn að vakna aðeins um helgina og var mjög gaman hjá okkur. Ég hef lent áður í sætaröðun frá dómurum og síðast vann ég ekki en nú í fyrsta sinn vann ég finnskan titil,“ sagði Marta mjög glöð með árangurinn í úrslitunum.

Julie Weijberg á Tjaldara frá Heimnesi unnu slaktaumatöltið. Jenni Kurki vann fjórganginn á Nelliku frá Sommarbo en þetta er fyrsta keppnistímabilið þeirra saman. Fimmganginn vann Laura Nyström á Gildu fra Stenkullagard. „Sigurinn er klárlega hápunktur dagsins! Ég var þegar búin að vinna silfur og brons svo ég var að stefna á gullið í þessari grein,“ sagði Laura eftir sigurinn en hún vann sjö verðlaun á mótinu.

HÉR er hægt að sjá allar niðurstöður frá mótinu

A úrslit í fjórgang

 

FM – A úrslit – Fimmgangur F1 – Niðurstöður

1 Laura Nyström Gilda fra Stenkullagård 6,21
2 Matisse Brummel Narri frá Vestri-Leirárgörðum 6,12
3 Julia Airola Vild frá Stað 5,79 NOFIN
4 Aava Andersén Randver fra Friðarnesi 4,76
5 Vilma Mätäsniemi Hvammur frá Hvolsvelli 4,19
6 Anna Hynninen Bragur frá Seljabrekku 3,48

FM – A úrslit – Fjórgangur V1 – Niðurstöður

1 Jenny Kurki Nellika fra Sommarbo 6.53
2 Laura Nystrom Hela fra Kaakkola 6:17
3 Martta Uusitalo Glampi frá Auðsholtshjáleigu 6.07
4 Essie Labart Pinocchio from Stenkullagard 6.03
5 Sandy Carson Trúr frá Jarðbrú 5.87
6 Katri Kolu Tristan fra Sommarbo 5.83
7 Yannika Pasanen Vorsol frá Rauðalæk 5.63

FM – A úrslit – Slaktaumatölt T2 – Niðurstöður

1 Julia Wejberg Tjaldari fra Heimnesi Thrymur från Järsta 6,67
2 Laura Nyström Héla fra Kaakkola Röðull frá Holtsmúla 1 6,33
3 Matisse Brummel Stakkur frá Flugumýri II Hróður frá Refsstöðum 5,58
4 Heli Käck Viktor fra Talma Bragi frá Austurkoti 5,46
5 Aura Kari Spretta frá Melaleiti Ágústínus frá Melaleiti 5,08

FM – A úrslit – Tölt T1 – Niðurstöður

1 Martta Uusitalo Glampi frá Auðsholtshjáleigu 6,22
2 Matisse Brummel Bragi frá Ytri-Skógum 6,22
3 Laura Nyström Gilda fra Stenkullagård 5,89
4 Katri Kolu Tristan fra Sommarbo 5,78
5 Sandy Carson Trúr frá Jarðbrú 5,50
6 Hanna Reihe Glóðar frá Heysholti 1,78

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link