Sænska landsliðið klárt
Máni Hilmarsson og Gljátoppur frá Miðhrauni eru í sænska landsliðinu
Búið er að velja í sænska landsliðið fyrir Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst. „Við eigum mjög mikla breidd af knöpum á toppnum í Svíþjóð, sem er mjög ánægjulegt, en það hefur líka gert valið sérstaklega krefjandi og þurfum við að skilja nokkra mjög hæfileikarík pör eftir heima,“ segir í tilkynningu frá sænsku valnefndinni en þar kemur einnig fram að knaparnir eru valdir með það í huga að vinna eins margar medalíur og möguleiki er.
Hér fyrir neðan eru þeir sem hafa verið valdir í landsliðið en auk þess eiga Svíar þrjá ríkjandi heimsmeistarar; Magnús Skúlason, Jack Eriksson og Elsu Teverud.
Sænska landsliðið:
Fullorðnir
- Máni Hilmarsson, Gljátoppur from Miðhrauni
- Jamila Berg, Toppur frá Auðsholtshjáleigu
- Kristján Magnússon, Oskar from Lindeberg
- Gudmundur Einarsson, Draumur from Tängmark
- Vignir Jónasson, Felix from Änghaga. Personal reserve Eyvindur frá Eyvindarmúla
- Filippa Helltén, Óðinn from Inchree
- Caspar Logan Hegardt, Oddi from Skeppargården
- Til vara: Jessica Rydin, Rosi frá Litlu-Brekku
Ungmenni
- Tekla Petersson, Vatnadís från Noastallet
- Lowa Walfridsson, Seifur från Skälleryd
- Alicia Palm, Ljúfa från Ekehol
- Lára Gardarsdottir Hesselman, Àlfur från Knutshyttan
- Amelie Segerström, Kopar frá Sunnuhvoli
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH