Meistaradeildin auglýsir eftir liðum til þátttöku
Meistaradeild í hestaíþróttum auglýsir eftir liðum til þátttöku í mótaröð deildarinnar árið 2024, lokadagur til að skila inn umsókn er 25. ágúst 2023. Senda skal umsóknina á netfangið [email protected] Í umsókninni þarf að koma fram hverjir eru liðseigendur og knapar liðsins. Hægt er að nálgast leikreglur Meistaradeildarinnar inn á heimasíðu deildarinnar HÉR
Á hverju keppnistímabili keppa 8 lið, þau lið sem eiga sjálfkrafa þátttökurétt 2024 eru:
- Auðsholtshjáleiga / Horseexport
- Ganghestar / Margrétarhof
- Þjóðólfshagi / Sumarliðabær
- Hestvit / Árbakki
- Hjarðartún
- Hrímnir / Hest.is
- Top Reiter
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts