Frakkland Franska landsliðið klárt

  • 14. júlí 2023
  • Tilkynning
Frakkar senda á mótið fimm fullorðna og tvö kynbótahross

Frakkar eru búnir að tilkynna landslið sitt sem mun keppa fyrir hönd Frakklands á Heimsmeistaramótinu í Oirschot í ágúst. Til að eiga möguleika á að komast í liðið þurftu knapar og hross að ná að lágmarki 6.30 í tölti og 6.10 í fjórgangi.

Liðsmenn franska liðsins eru eftirfarandi:

  • Berglind Inga Árnadóttir og Kurr frá Koltursey – Tölt T1
  • Julie Darbon og Byrnir frá Vorsabæ II – Slaktaumatölt T2 og fjórgangur V1
  • Mathieu Dischinger og Gustur frá Yztafelli – Fjórgangur V1
  • Pascale Kugler og Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum – Tölt T1 og fjórgangur V1
  • Elías Þórhallsson og Rauðhetta frá Þúfu í Kjós – Tölt T1 og fjórgangur V1

Einnig senda Frakkar tvö kynbótahross á mótið bæði frá ræktunarbúinu Langeren.

Þau eru Harka du Langeren, í 6 vetra flokki hryssna, og Gyllir du Langeren í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar