Bætt hefur verið við tveimur sýningardögum
Vegna mjög mikillar eftirspurnar að koma hrossum til dóms miðsumars á Suðurlandi hefur verið ákveðið að bæta við tveimur sýningardögum 31. júlí og 1. ágúst (Rangárbakkar við Hellu, vika 3) auk yfirlitssýningar 2.ágúst. Þeir sem hafa óskað eftir að koma hrossum að eru því hvattir til að skrá hross sín sem fyrst en opið er fyrir skráningu til miðnættis laugardaginn 15 júlí.
Skráning og greiðsla fer fram hér á heimasíðu RML.
Sjá nánar:
Upplýsingar um kynbótasýningar
Skrá hross á kynbótasýningu
www.rml.is
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Uppsveitadeildin 2027