Íslandsmót „Ég var alveg peppuð í þetta“

  • 16. júlí 2023
  • Fréttir

Myndir: Marta Gunnarsdóttir

Þórhildur Helgadóttir er Íslandsmeistari í fjórgangi í barnaflokki

A úrslitum er lokið í fjórgangi í barnaflokki og voru þau mjög spennandi. Þær enduðu jafnar í efsta sæti Hjördís Halla Þórarinsdóttir á Flipa frá Bergsstöðum og Þórhildur Helgadóttir á Kóngi frá Korpu. Eftir sætaröðun dómara fór það svo að Þórhildur og Kóngur er Íslandsmeistarar í fjórgangi í barnaflokki. Í þriðja sæti varð Apríl Björk Þórisdóttir á Hólma frá Kaldbak.

„Ég átti ekki von á þessu. Mig hefur alltaf langað að verða Íslandsmeistari en ég átti alls ekki vona á þessu. Hann var bara geggjaður. Frábær tilfinning á vellinum. Ég var alveg peppuð í þetta, hlustaði á gott lag á leiðinni á mótið og var alveg til í þetta,“ sagði Þórhildur eftir að hún hampaði titlinum. „Kóngur getur verið mjög rólegur en svo getur maður sett hann í gang og þá verður hann viljugur. Hann er æðislegur. Uppáhalds hesturinn minn,“ en þau Þórhildur og Kóngur keppa á eftir í a úrslitum í slaktaumatölti og stefna síðan á Landsmót á næsta ári.

Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins

 

 

Nr. 1-2 Þórhildur Helgadóttir – Kóngur frá Korpu – 
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Hægt tölt 7,00 7,00 6,50 6,50 6,50 6,67
Brokk 7,00 7,50 6,50 7,00 7,00 7,00
Fet 6,50 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50
Stökk 7,50 7,50 6,50 7,00 7,00 7,17
Greitt tölt 7,00 6,50 7,00 7,00 7,00 7,00

Nr. 1-2 Hjördís Halla Þórarinsdóttir – Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi – 
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Hægt tölt 7,00 6,50 6,50 7,00 7,00 6,83
Brokk 7,00 7,00 7,00 6,50 7,00 7,00
Fet 6,50 6,00 6,50 6,00 7,00 6,33
Stökk 7,00 7,00 7,50 7,00 7,00 7,00
Greitt tölt 7,00 7,00 7,50 6,50 7,50 7,17

Nr. 3 Apríl Björk Þórisdóttir –  Hólmi frá Kaldbak 
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal x Vægi
Hægt tölt 6,50 6,50 6,50 6,50 7,00 6,50
Brokk 6,50 6,50 6,50 7,00 6,00 6,50
Fet 6,00 6,00 5,50 6,00 6,00 6,00
Stökk 7,00 6,50 7,50 7,50 7,00 7,17
Greitt tölt 6,50 6,50 7,00 7,00 6,50 6,67

Nr. 4-5 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir – Bragabót frá Bakkakoti 
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal x Vægi
Hægt tölt 6,50 6,50 6,50 5,50 6,50 6,50
Brokk 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50 6,50
Fet 6,50 6,00 5,50 6,00 6,50 6,17
Stökk 6,00 6,50 7,00 6,00 6,50 6,33
Greitt tölt 6,50 6,00 7,00 6,00 6,50 6,33

Nr. 4-5 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir – Laufi frá Syðri-Völlum –
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal x Vægi
Hægt tölt 6,00 6,00 5,50 6,00 5,50 5,83
Brokk 6,50 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50
Fet 6,50 7,00 6,50 7,00 6,50 6,67
Stökk 6,50 6,50 7,00 6,50 6,50 6,50
Greitt tölt 6,50 6,00 7,00 6,00 6,50 6,33

Nr. 6 Jakob Freyr Maagaard Ólafsson – Sólbirta frá Miðkoti – 
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal x Vægi
Hægt tölt 6,00 6,00 6,00 6,50 6,00 6,00
Brokk 6,50 6,00 6,50 6,50 6,50 6,50
Fet 5,50 6,00 6,50 6,00 6,00 6,00
Stökk 6,00 6,00 6,50 6,50 6,50 6,33
Greitt tölt 6,50 6,50 7,00 6,00 6,50 6,50

Nr. 7 Svala Björk Hlynsdóttir –  Selma frá Auðsholtshjáleigu – 
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal x Vægi
Hægt tölt 7,50 6,50 6,50 6,00 6,00 6,33
Brokk 4,00 2,50 3,00 3,00 1,50 2,83
Fet 5,50 5,50 6,00 5,00 6,50 5,67
Stökk 6,00 5,50 7,00 6,50 6,00 6,17
Greitt tölt 6,50 6,00 6,50 6,50 6,50 6,50

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link