„Skemmtilegt að breyta aðeins til og bæta þessari grein við“
Myndir: Marta Gunnarsdóttir
A úrslitum í gæðingatölti í unglingaflokki í boði MÞ bygginga voru að klárast og voru það þær Elva Rún Jónsdóttir og Fluga frá Feti sem stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 8.69.
„Skemmtilegt að breyta aðeins til og bæta þessari grein við. Mjög gaman,“ segir Elva Rún nýkrýndur sigurvegari í gæðingatölti í unglingaflokki. „Fluga er algjör gæðingur. Meiriháttar snillingur sem allir geta riðið. Hún er eiginlega algjört uppáhald,“ segir Elva Rún um hana Flugu en þær fara í smá pásu núna þangað til þjálfun hefst aftur fyrir næsta keppnistímabil.
Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins
Niðurstöður – A úrslit – Gæðingatölt – Unglingaflokki
1 Elva Rún Jónsdóttir / Fluga frá Garðabæ 8,69
2 Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti 8,67
3 Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Ísar frá Skáney 8,57
4 Ísak Ævarr Steinsson / Lukka frá Eyrarbakka 8,54
5 Vigdís Anna Hjaltadóttir / Gljái frá Austurkoti 8,49
6-7 Ísabella Helga Játvarðsdóttir / Irpa frá Ólafsvöllum 8,37
6-7 Bertha Liv Bergstað / Segull frá Akureyri 8,37
8 Elsa Kristín Grétarsdóttir / Flygill frá Sólvangi 8,22
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH