Íslandsmót „Smá stress fyrst en svo bara gaman“

  • 16. júlí 2023
  • Fréttir

Myndir: Marta Gunnarsdóttir

Svandís er Íslandsmeistari í tölti í unglingaflokki

Svandís Aitken Sævarsdóttir og Fjöður frá Hrísakoti unnu töltið í unglingaflokki og eru því Íslandsmeistarar í greininni.

„Þetta var mjög gaman, smá stress fyrst en svo bara gaman. Mig langaði mjög mikið að vinna töltið svo ég er mjög ánægð með árangurinn,“ segir Svandís eftir sigurinn.

Í öðru sæti varð Elva Rún Jónsdóttir á Straumi frá Hofsstöðum í Garðabæ og jöfn í þriðja og fjórða sæti eru Matthías Sigurðsson á Drottningu frá Íbishóli og Sigurbjörg Helgadóttir á Elvu frá Auðsholtshjáleigu.

Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins

 

May be an image of 8 people, horse and text

Niðurstöður – A úrslit – Tölt – Unglingaflokkur

1 Svandís Aitken Sævarsdóttir / Fjöður frá Hrísakoti 7,56
2 Elva Rún Jónsdóttir / Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 7,50
3-4 Matthías Sigurðsson / Drottning frá Íbishóli 7,28
3-4 Sigurbjörg Helgadóttir / Elva frá Auðsholtshjáleigu 7,28
5 Dagur Sigurðarson / Gróa frá Þjóðólfshaga 1 7,17
6 Ragnar Snær Viðarsson / Þormar frá Neðri-Hrepp 7,06

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link