Síðasti skráningardagur á Gæðingamótið á Flúðum

  • 24. júlí 2023
  • Fréttir
Gæðingamótið á Flúðum er opið öllum
Síðasti skráningardagur er í dag á Gæðingamótið á Flúðum sem hestamannafélagið Jökull stendur fyrir. Stefnt er á að hafa dagskránna með svipuðu sniði og í fyrra en dagskrá verður birt við fyrsta tækifæri eftir að skráningu er lokið.
Skráning fer fram á sportfeng.com en mikilvægt er að senda staðfestingu á greiðslu á [email protected]. Vegleg peningarverðlaun eru í boði í öllum fullorðins flokkum og er 35 hesta þak er í flestum flokkum.
Eins og undanfarin ár þá verður boðið upp á pollaflokk, bæði fyrir polla sem ríða einir og þá sem hafa með sér aðstoðarmann. Skráning fyrir þá er í gegnum netfangið [email protected].
Á laugardagskvöldin verður síðan trúbadorstemning í Reiðhöllinni á Flúðum en Gunni Óla ætlar að mæta og skemmta fólki, allir velkomnir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link