„Þetta verður ein mest spennandi greinin á mótinu sem endar með því að Teitur setur heimsmet þarna“
Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en minna en vika er til stefnu. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.
Spámaður dagsins er Sigurður Ævarsson.
Fullorðnir:
Tölt T1:
Ég er að spái Jóhönnu Margréti sigri, en ég er samt á því að Viðar Ingólfsson getur gert góða hluti á Þór frá Stóra-Hofi, hann verður alveg grimm harður þarna og þeir eru magnaðir saman.
Fjórgangur V1:
Ég held að Anne Stine Haugen á Hæmir fra Hyldsbæk sigri fjórganginn. Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi verða í toppbaráttunni.
Fimmgangur F1:
Þar ætla ég bara einfaldlega að veðja á Söru Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli. Ég hef bara tröllatrú á þeim, þau eiga saman frábæran feril sem mun enda þarna glæsilega. Þorgeir fer í A-úrslit og getur þannig orðið samanlagður fimmgangssigurvegari.
Slaktaumatölt T2:
Christina Lund og Lukku-Blesi sigra það.
Gæðingaskeið:
Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum verða fyrstu heimsmeistarar mótsins.
250 m. skeið:
Er ekki Hans Þór bara að vinna þetta með svipuðum hætti og Teitur vinnur 100 metrana, hann nær einum eða tveimur sprettum af fjórum og það dugar til sigurs. Hinir Íslendingarnir verða í toppbaráttunni við hann.
100 m. skeið:
Ég held að Teitur Árnason komi eins og skrattinn úr sauðaleggnum á Drottning frá Hömrum II og vinni þetta á einum spretti, og hinir íslenku keppendurnir eiga eftir að standa sig vel og raða sér í efstu sætin. Þetta verður ein mest spennandi greinin á mótinu sem endar með því að Teitur setur heimsmet þarna.
Samanlagðar Fjórgangsgreinar:
Ég er sannfærður um að Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi fara með samanlagðan fjórgangssigur.
Samanlagðar Fimmgangsgreinar:
Þorgeir Ólafsson vinnur samanlagðan fimmgangssigur með hestinn sinn Goðastein frá Haukagili.
Ungmenni:
Tölt T1:
Herdís Björg og Kvarði frá Pulu klárlega, Jón Ársæll verður í úrslitum.
Fjórgangur V1:
Jón Ársæll og Frár frá Sandhól, ekki spurning.
Fimmgangur F1:
Glódís Rún og Salka frá Efri Brú, það verður öruggt.
Slaktaumatölt T2:
Ég vona að Bensa gangi vel í Slaktaumatöltinu og tryggi þannig samanlagðan fimmgangssigur.
Gæðingaskeið:
Benni og Leira-Björk frá Naustum verða heimsmeistarar seinnipartinn á þriðjudag.
100 m. skeið:
Við setjum allt okkar traust á Sigríði Ingibjörgu á Ylfu frá Miðengi, henni mun líka duga einn sprettur til að klára heimsmeistaratitilinn.
Samanlagðar fjórgangsgreinar:
Jón Ársæll og Frár frá Sandhól á það bara.
Samanlagðar fimmgangsgreinar:
Ég vona að Bensi fari í þær greinar sem þarf, þá vinnur hann þetta.
Liðabikarinn fer til Íslands.
Þetta er mjög blá spá, en ég hef bara svo óbilandi trú á þessu liði að ég held að þetta geti ekki klikkað. Mér hlakkar rosalega til að fylgja þessu liði og hef tröllatrú á þeim.
Ég vill nota tækifærið og óska öllum góðs gengis á mótinu.
Áfram Ísland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH