„Hann er pottþétt að fara að hlaða í hraðasta sprett með sinn helsta keppinaut heima á gallabuxunum“
Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en innan við vika er til stefnu. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.
Spámaður dagsins er Einar Ben Þorsteinsson.
Tölt T1
Sys Pilegaard og Abel frá Tyrevoldsdal – Klárlega enginn sem á roð í Abel á yfirferðinni, þar sem þrír dómarar gefa 10 og tveir 9.5. Það ræður úrslitum.
Tölt T2
Daniel Schulz og Spuni frá Heesberg – Julia Cristensen á Felix verður 0,02 á eftir honum.
Fjórgangur V1
Frauke Schenzel og Jódís frá Kronshof. – Hún er bara með´etta. Því miður. Eini sénsinn er að hnykking gefi sig og hún missi skeifu.
Fimmgangur F1
Jón Stenild og Eilífur frá Steglborg. – Jón klikkar á fyrsta skeiðspretti í úrslitum, en nær svo sönsum og reddar gullinu.
Gæðingaskeið PP1
Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum. – Þetta getur bara ekki klikkað, karmað er með þeim og þetta verður auðvelt.
250m skeið
Marcus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti – Þessi gaur er að fara að toppa á réttum tíma. Hann er pottþétt að fara að hlaða í hraðasta sprett með sinn helsta keppinaut heima á gallabuxunum.
100m fljúgandi skeið
Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum. – Teitur á svosum ekki langa sögu af góðum tímum á Drottningu, en hann strauar góðan lokasprett og fagnar sigri.
Samanlagður fjórgangs
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi – Hún fær sárabót eftir að þurfa að handleika tvö súrsæt silfur í T1 og V1.
Samanlagður fimmgangs
Þorgeir Ólafsson og Goðasteinn frá Haukagili Hvitársíðu – Guttinn með stáltaugarnar kemur aftan að keppinautunum og skilar góðri frammistöðu á öllum vígstöðvum.
Ungmenni:
Tölt T1
Anna Sager og Steggur frá Hrísdal. Það gæti glatt Hrísdalsbændur, ekki mikið fleiri Íslendinga.
Tölt T2
Sophia Henke og Hilmir frá Ostwald. Algjört skot í myrkri.
Fjórgangur V1
Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhóli. Frár mun heiðra minningu föður síns.
Fimmgangur F1
Glódís Rún Sigurðardóttir og Salka frá Efri Brú. Dóttir mín heldur með henni fyrir allan peninginn.
100m fljúgandi skeið
Þarna mun Sigríður Ingibjörg og Ylfa taka þetta örugglega.
Gæðingaskeið PP1
Benedikt Ólafsson og Leira Björk frá Naustum. Það hlýtur bara að vera.
Samanlagður fjórgangssigurvegari ungmenna verður að öllum líkindum Jón Ársæll Bergmann. Svo skulum við sjá hvað gerist með samanlagaðr fimmganggreinar. Eiginlega vonlaust að spá fyrir um það fyrir menn sem eru svo langt utan af landi.
Allavega verður gaman að fylgjast með HM og ég vona svo sannarlega að ég hafi ekki rétt fyrir mér með sumt af þessu og að íslensku gullin verði fleiri hjá fullorðna fólkinu.
Koma svo Ísland.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH