Danmörk Fulltrúi Dana í umferðarslysi

  • 4. ágúst 2023
  • Fréttir

Myndir: Eyja.net

Fréttir af keppendum á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi

Hin dansk ræktaða Dama fra Legind mun ekki taka þátt í kynbótasýningunni á Heimsmeistaramótinu eftir að hún og knapi hennar og ræktandi Mette Bovbjerg Sørensen lentu í umferðarslysi nálægt Flensburg á leið sinni á mótsvæðið í gærmorgun en þetta staðfestir Eyvindur Hrannar Gunnarsson liðsstjóri kynbótahrossanna í danska landsliðinu.

Hestakerran losnaði af kúlunni á bílnum og valt kerran á hliðina þar sem hryssan var föst í smá stund. Náðist að rétta hestakerruna af áður en lögregla og dýralæknir mættu á svæðið. Hryssan var nánast óslösuð eftir atvikið og var hún flutt á hrossaræktarbúið Schleswig sem er í nágrenninu þar sem hún fékk tækifæri til að jafna sig.

„Ég þakka guði að enginn slasaðist alvarlega og að atvikið olli ekki meiri skaða á okkur eða öðrum í kring. Dama mun ekki taka þátt á mótinu eins og við ætluðum okkur en nú er mikilvægast að koma henni heim og ganga úr skugga um að Dama hafi ekki orðið fyrir skaða,“ sagði Mette í samtali við Tölt.dk

Dama var fulltrúi Dana í flokki 7 vetra og eldri hryssna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link