Efsti hestur ræktaður í Danmörku
Hraði fra Skovhuset
Kynbótasýningar hafa verið partur af Heimsmeistaramótunum síðan 1985 en þá var í fyrsta sinn dæmd hross á Evrópumóti. Hvert aðildarland FEIF hefur rétt á að senda tvö hross í hverjum aldursflokki og mega hrossin taka þátt bæði í íþróttakeppninni og vera sýnd á kynbótasýningunni. Hrossin mega einungis vera sýnd fyrir það aðildarland sem það er fætt í.
Hryssur og stóðhestar eru sýnd í sitthvorum flokknum og eru allir aldursflokkar nema 4 vetra hross á Heimsmeistaramótum. Í ár verður sú nýbreytni að ekki verða hrossin byggingardæmd á mótinu heldur fylgir einkunnin með þeim inn á mótið.
Á síðasta móti stóðu íslensk fædd hross efst í fjórum flokkum af sex. Íslendingar áttu hæsta sex vetra stóðhestinn á síðasta móti, Spaða frá Barkarstöðum.
Fjórir hestar eru skráðir í sex vetra flokkinn á mótinu en þetta er næst minnsti flokkurinn á mótinu. Ef skoðaðar eru aðaleinkunnir þessara hesta fyrir mótið er efstur Hraði fra Skovhuset (DK) með 8,51 í aðaleinkunn og næstir í röðinni eru þeir Geisli frá Árbæ (IS) með 8,49 í aðaleinkunn og Merkúr från Smedjan (SE) með 8,23 í aðaleinkunn.
201)
IS2017186936 Geisli frá Árbæ – ÍSLAND
Ræktandi: Gunnar Andrés Jóhannsson, Vigdís Þórarinsdóttir
Eigandi: G. Jóhannsson ehf
F.: IS2009135006 Ölnir frá Akranesi
M.: IS2010286935 Gleði frá Árbæ
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,0 = 8,76
Sýnandi: Árni Björn Pálsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,49
237)
SE2017122918 Merkúr från Smedjan – SVÍÞJÓÐ
Ræktandi: Jesper Eurenius
Eigandi: Jesper Eurenius kt: SE0000117332, Josefin Birkebro kt: SE0000108831
F.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
M.: SE2003202373 Minning från Margaretehof
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 9,0 – 9,5 = 8,29
Sýnandi: Josefin Birkebro
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,23
216)
DK2017100389 Hraði fra Skovhuset – DANMÖRK
Ræktandi: Skovhuset Islandsheste v. Vivi Guul og Sven-Jørn Guul
Eigandi: Skovhuset Islandsheste v. Vivi Guul og Sven-Jørn Guul
F.: IS2006188028 Feykir frá Háholti
M.: IS2008257005 Særún frá Sauðárkróki
Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,5 = 8,29
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,51
232)
NO2017104027 Golíat fra Dysterud – NOREGUR
Ræktandi: Dysterud Breeding AS
Eigandi: Dysterud Breeding AS
F.: SE2009110329 Viking från Österåker
M.: IS2009286938 Garún frá Árbæ
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 7,0 = 8,28
Sýnandi: Kristin Elise Andersen
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,27
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH