„Við erum bara mjög ánægðir með okkur“
Mynd tekin af Viðari og Þór á æfingu í gær Ljósmyndari: Iris van Velzen
Þjálfarar íslenska landsliðsins eru mættir á staðinn og voru æfingar í gær og í dag hjá íslenska liðinu. Samkvæmt heimildum Eiðfaxa gengu þær vel. Þjálfarateymið skipa Sigurbjörn Bárðarson A-landsliðs þjálfari og Hekla Kristinsdóttir Landsliðsþjálfari U21 og aðstoðaþjálfarar eru Sigurður Matthíasson og Þórarinn Eymundsson.
Eiðfaxi heyrði aðeins í Viðari Ingólfssyni sem mun keppa fyrir Íslandshönd á Þór frá Stóra-Hofi í tölti og fjórgangi.
„Við erum bara mjög ánægðir með okkur. Völlurinn eru mjög góður eiginlega bara frábær og mér skilst að skeið- og kynbótabrautin væri bara eins,“ segir Viðar en hann sagði æfingar hafa gengið vel hjá öllum og knapar og hestar séu almennt í góðu standi.
Töluvert hefur ringt síðust daga og urðu keppendur m.a. að taka á það ráð að grafa litla skurði til að veita vatni frá hesthúsunum. Vegna þess hversu mikið hefur ringt er uppsetning á svæðinu aðeins á eftir áætlun.
„Svæðið hérna er í topplagi, bara nákvæmlega eins og það var árið 2017 enda vita Hollendingarnir alveg hvað þeir eru að gera. Það er búið að vera ógeðslega blautt en það er að þorna og verða betra. Hitastigið er gott en það er spáð aðeins meiri hita í næstu viku. Ég hef engar áhyggjur af því. Mér finnst hann bara ferkar hafa góð áhrif en hitt.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH