„Hansi og Danni verða mjög beittir í 250 og geta landað þessu“

  • 5. ágúst 2023
  • Fréttir
Spáð í spilin fyrir Heimsmeistaramót

Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en nokkrir dagar eru til stefnu. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.

Spámaður dagsins er Ólafur Ásgeirsson.

 

Tölt T1
Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi vinna og Viðar á Þór frá Stóra-Hofi mun standa sig vel og vera í A-úrslitum.

Tölt T2
Ég veðja á Mána Hilmarsson og Gljátopp frá Miðhrauni.

Fjórgangur V1
Ég held Frauke Schenzel og Jódís von Kronshof muni vinna. Jóhanna Margrét og Bárður verða skammt undan. Viðar og Þór munu koma á óvart í þessari grein.

Fimmgangur F1
Ég held að Sara og Þorgeir verði i topp baráttunni á samt Jón Stenild, og á endanum munu þeir Þorgeir og Goðasteinn frá Haukagili á Hvitársíðu taka gullið.

Gæðingaskeið PP1
Það verður Geysisfélagi sem landar sigrinum þar Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum.

250m skeið – 100 m skeið
Ég veit ekki alveg með þetta en ég ætlar veðja á Teit í 100 metrunum. Hansi og Danni verða mjög beittir í 250 og geta landað þessu.

Samanlagður fjórgangssigurveigari
Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi.

Samanlagður fimmgangssigurveigari
Þorgeir og Goðastein frá Haukagili á Hvitársíðu.

 

Ungmenni

Tölt T1
Ég held Herdís Björg og Kvarði frá Pulu munu vinna og Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli verða i topp baráttunni.

Tölt T2
Pass.

Fjórgangur V1
Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli. Snilldar par og flott reiðmennska.

Fimmgangur F1
Glódís Rún á Sölku frá Efri-Brú mun standa uppi sem sigurvegari.

Skeiðið
Ég veit ekki alveg, en Sigríður Ingibjörg og Ylfa frá Miðengi munu standa sig vel.

Gæðingaskeið PP1
Benedikt Ólafsson og Leira Björk frá Naustum.

Samanlagður fjórgangssigurveigari
Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli.

Samanlagður fimmgangssigurveigari
Benedikt Ólafsson og Leira Björk frá Naustum negla það.

Áfram Ísland 🇮🇸

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link