„Hér er allt í góðum málum“
Það hefur ringt í allann dag í Hollandi og svæðið orðið verulega blautt. Veðurspáin er þó góð fyrir næstu viku og eigum við von á því að einungis muni rigna gulli næsta sunnudag.
Íslenska liðið er í góðu stuði og það fer vel um hesta og menn. Eiðfaxi tók stöðuna og heyrði í U-21 landsliðsþjálfaranum okkar Heklu Katharínu Kristinsdóttur.
“Hjá okkur íslenska liðinu er staðan frekar góð. Það er búið að vera mjög mikil rigning í allan dag og svæðið er blautt. Í kringum tjöld og annað er ofboðslega drulla og á reiðvegum. Það góða er þó að brautirnar halda gríðarlega vel. Í íslenska liðinu gátu margir tekið frídag á hestana sína í dag og aðrir létta þjálfun. Hrossin virkilega spræk og líta vel út. Í raun held ég að þessi rigningardagur komi ekki að sök. Hvað sem öðru líður er ágætis veðurspá fyrir næstu viku og við erum bjartsýn á þetta allt saman,” segir Hekla. Aðspurð út í líðan Árna Björns sem hafði meiðst á hné fyrr í vikunni segir hún allt vera á réttri braut. „Árni Björn er aðeins haltur en orðinn reiðfær og hrossin í miklu stuði hjá honum.“
“Það er ýmislegt í gangi í dag, fundir og allskonar atriði sem þarf að fara yfir. Kl. 4 er síðan dýralæknaskoðun hjá kynbótahrossunum svo það er alltaf einhver dagskrá. Knaparnir eru síðan að huga að hrossunum sínum en það er frekar rólegt yfir hópnum í dag,” segir Hekla sem vill hrósa mótshöldurum fyrir rosalega vel búið svæði. “Það er búið að gera allt til þess að allt gangi sem best upp. Vellirnir eru mjög góðir og tjöldin og stíjurnar eru góðar. Við erum síðan bara vakandi fyrir því að vatnið komi ekki inn í tjöldin og hefur það alveg sloppið hingað til. Hér er allt í góðum málum.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH