Efstu hryssur ræktaðar á Íslandi og Þýskalandi
Kynbótasýningar hafa verið partur af Heimsmeistaramótunum síðan 1985 en þá var í fyrsta sinn dæmd hross á Evrópumóti. Hvert aðildarland FEIF hefur rétt á að senda tvö hross í hverjum aldursflokki og mega hrossin taka þátt bæði í íþróttakeppninni og vera sýnd á kynbótasýningunni. Hrossin mega einungis vera sýnd fyrir það aðildarland sem það er fætt í.
Hryssur og stóðhestar eru sýnd í sitthvorum flokknum og eru allir aldursflokkar nema 4 vetra hross á Heimsmeistaramótum. Í ár verður sú nýbreytni að ekki verða hrossin byggingardæmd á mótinu heldur fylgir einkunnin með þeim inn á mótið.
Á síðasta móti stóðu íslensk fædd hross efst í fjórum flokkum af sex. Íslendingar áttu m.a. hæstu sex vetra hryssuna á síðasta móti, Eyrúnu Ýr frá Hásæti.
Sjö hryssur eru skráðar í sex vetra flokkinn á mótinu. Ef skoðaðar eru aðaleinkunnir þessarar hryssna fyrir mótið er efstar Pála vom Kronshof (DE) og Hrökk frá Fákshólum (IS) báðar með 8,55 í aðaleinkunn og næstar í röðinni eru þær Þrúða von der Dresdnerheide (DE) með 8,41 í aðaleinkunn og Karólína från Backome (SE) með 8,26 í einkunn. Tvær þýsk fæddar hryssur er í flokknum.
203)
IS2017281424 Hrönn frá Fákshólum – ÍSLAND
Ræktandi: Helga Una Björnsdóttir, Jón Eiríksson, Sigurbjörg Geirsdóttir
Eigandi: Egger-Meier Anja, Kronshof GbR
F.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
M.: IS2005255551 Adama frá Búrfelli
Sköpulag: 7,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 7,0 = 8,59
Sýnandi: Jakob Svavar Sigurðsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,55
225)
DE2017234955 Pála vom Kronshof – ÞÝSKALAND
Ræktandi: Kronshof GbR
Eigandi: Egger-Meier Anja, Kronshof GbR
F.: DE2010163007 Óðinn vom Habichtswald
M.: DE2011234069 Jódís vom Kronshof
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 = 8,21
Sýnandi: Frauke Schenzel
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,55
214)
DK2017200254 Guðrún fra Bredgaard – DANMÖRK
Ræktandi: Christina Bredgaard Husum, Per Rasmussen
Eigandi: Christina Bredgaard Husum, Per Rasmussen
F.: DK2012100113 Skinfaxi fra Lysholm
M.: IS2004286690 Iða frá Holtsmúla 1
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 = 8,19
Sýnandi: Søren Madsen
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,23
220)
FR2017268440 Harka du Langeren – FRAKKLAND
Ræktandi: Kugler Pascale
Eigandi: Kugler Pascale
F.: IS2011187378 Bjarkar frá Langholti
M.: FR2007268122 Tillit du Langeren
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 = 8,04
Sýnandi: Erlingur Erlingsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,02
228)
DE2017255347 Þrúða von der Dresdnerheide – ÞÝSKALAND
Ræktandi: Angelika Persin
Eigandi: Angelika Persin
F.: IS2001187660 Álfasteinn frá Selfossi
M.: IS2004256322 Þraut frá Þingeyrum
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 7,0 = 8,00
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,41
246)
NL2017200107 Aría frá Álftakoti – HOLLAND
Ræktandi: Dhr. T.G. Hoogenboom, Mw. S. Philipsen
Eigandi: Dhr. B. Vervest, Dhr. T.G. Hoogenboom, Mw. M.J. Pels, Mw. S. Philipsen
F.: IS2007184162 Skýr frá Skálakoti
M.: IS2013281120 Arna frá Holtsmúla 1
Sköpulag: 8,0 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 7,5 = 7,90
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,06
238)
SE2017223903 Karólína från Backome – SVÍÞJÓÐ
Ræktandi: Backome Islandshästar AB
Eigandi: Karly Zingsheim kt: DEZ000100097
F.: SE2009110329 Viking från Österåker
M.: DE2002243682 Kvika vom Forstwald
Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 7,5 – 7,5 – 8,0 – 7,5 = 7,89
Sýnandi: Karly Zingsheim
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,26
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH