Efsta hryssan ræktuð á Íslandi
Ársól frá Sauðanesi, sýnandi Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Mynd: Nicki Pfau
Kynbótasýningar hafa verið partur af Heimsmeistaramótunum síðan 1985 en þá var í fyrsta sinn dæmd hross á Evrópumóti. Hvert aðildarland FEIF hefur rétt á að senda tvö hross í hverjum aldursflokki og mega hrossin taka þátt bæði í íþróttakeppninni og vera sýnd á kynbótasýningunni. Hrossin mega einungis vera sýnd fyrir það aðildarland sem það er fætt í.
Hryssur og stóðhestar eru sýnd í sitthvorum flokknum og eru allir aldursflokkar nema 4 vetra hross á Heimsmeistaramótum. Í ár verður sú nýbreytni að ekki verða hrossin byggingardæmd á mótinu heldur fylgir einkunnin með þeim inn á mótið.
Á síðasta móti stóðu íslensk fædd hross efst í fjórum flokkum af sex. Íslendingar áttu m.a. hæstu fimm vetra hryssuna á síðasta móti, Mjallhvíti frá Þverholtum
Fimm hryssur eru skráðar í fimm vetra flokkinn á mótinu. Ef skoðaðar eru aðaleinkunnir þessarar hryssna fyrir mótið er efst Ársól frá Sauðanesi (IS) með 8,51 í aðaleinkunn og næst í röðinni er List fra Bendstrup (DK) með 8,20 í aðaleinkunn.
215)
DK2018200398 List fra Bendstrup
Ræktandi: Birgitta Guðnason, Debelmose Isheste v. Søren Madsen
Eigandi: Debelmose Isheste v. Søren Madsen
F.: DK2012100113 Skinfaxi fra Lysholm
M.: DK2005205451 Minning fra Bendstrup
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,0 = 8,34
Sýnandi: Søren Madsen
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,20
227)
DE2018234170 Rebekka vom Kronshof
Ræktandi: Kronshof GbR
Eigandi: Kronshof GbR
F.: DE2010163007 Óðinn vom Habichtswald
M.: DE2007234104 Emma vom Kronshof
Sköpulag: 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,0 = 8,26
Sýnandi: Frauke Schenzel
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,10
202)
IS2018267175 Ársól frá Sauðanesi
Ræktandi: Ágúst Marinó Ágústsson
Eigandi: Jens Peter Sonne, Maja Lykke Groth, Marianne Sonne
F.: IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti
M.: IS2007267171 Sóllilja frá Sauðanesi
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 7,0 = 8,24
Sýnandi: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Aðaleinkunn fyrir mót: 8,51
230)
NO2018204259 Alexandra fra Kringeland
Ræktandi: Inge Kringeland
Eigandi: Inge Kringeland
F.: IS2001187660 Álfasteinn frá Selfossi
M.: IS2000256470 Veröld frá Blönduósi
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 8,5 – 6,5 = 8,16
Sýnandi: Erlingur Erlingsson
Aðaleinkunn fyrir mót: 7,90
239)
SE2018224041 Náttfaradís från Raudhetta gård
Ræktandi: Raudhetta Islandshästar AB
Eigandi: Raudhetta Islandshästar AB kt: SE0000700002
F.: IS2008184082 Dagfari frá Eylandi
M.: SE2004203415 Lilja från Lindvallen
Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 7,5 – 8,0 – 7,0 = 7,92
Sýnandi: Sebastian Benje
Aðaleinkunn fyrir mót: 7,99
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH