„Ég held þetta verði skemmtilegt mót“

  • 6. ágúst 2023
  • Fréttir
Spáð í spilin fyrir Heimsmeistaramót

Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en nokkrir dagar eru til stefnu. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.

Spámaður dagsins er Guðmar Þór Pétursson

„Ég held þetta verði skemmtilegt mót. Við erum með flott lið og það er skemmtileg stemming. Ég spái vel fyrir þeim“

Tölt T1
Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi verða rosalega sterk í bæði tölti og fjórgangi. Hesturinn er búinn að vera ofboðslega góður upp á síðkastið, alveg unun að horfa á þau. Ofsalega flott par í samanburði verður erfitt að eiga við þau. Hún vinnur annað hvort tölt eða fjórgang og hún vinnur samanlagðan. Hún verður að berjast um Sys í töltinu og Frauke í fjórgangnum.

Veðja á Sys að hún taki töltið. Því Hanna Magga tekur þá fjórganginn og samanlagðan fjórgangs sigurvegara.

Tölt T2
Christina Lund held ég að hún verði illviðráðanleg þar. Þorgeir gæti alveg farið í kannski B-úrslit. Hann er góður í því en er ekki að fara vinna neitt. Hann nær sér í einhverja punkta þarna.

Fjórgangur V1
Ég ætla að segja að Jóhanna Margrét vinni það, ef við tökum þetta svona aðskilið. Ef hesturinn verður eins og hann var búinn að vera hérna á Íslandi í sumar þá eiga þeir ekkert í hana. Hún byrjaði heldur ekki með hann svo snemma í ár og veit nákvæmlega hvað hún er að gera.

Fimmgangur F1
Ef að Flóki og Sara gera það sem þau geta, þó það hafi ekki gengið upp á Íslandsmótinu þá voru þau búin að gera frábæra hluti eiginlega alltaf annars staðar. Fannst soldið töff eða rökrétt að hann sé inni. Hann er búinn að vera stórkostlegur. Trúi að þau geta unnið þetta. Þorgeir verður í A-úrslitum, ég held það. Hann stigar alls staðar inn og það mun koma þeim langt. Það er erfitt að eiga við svoleiðis fimmgangshest.

Sara og Flóki heimsmeistarar og Þorgeir verður númer 3.

Gæðingaskeið PP1
Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum. Virðist geta gert þetta með lokuð augun. Ofboðslegt öryggi líka.

100 m skeið
Teitur og Drottning gera góða hluti þar. Hún er öskufljót. Ég veit ekki hvort það verður met en þau ná frábærum spretti.

250m skeið
Hansi og Danni verða sterkir þar. Ég spái þeim mjög ofarlega. Veit ekki hvort þeir sigra en Hansi er líklegri og ég spái honum sigri. Lækjamóts Kóngurinn kemur á milli Hansa og Danna, sem verður í þriðja.

Samanlagður fjórgangssigurveigari
Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi, aldrei vafi.

Samanlagður fimmgangssigurveigari
Þorgeir og Goðastein frá Haukagili á Hvitársíðu. Hann er sterkur í slaka taumnum líka.

 

Ungmenni

Tölt T1
Herdís Björg og Kvarði frá Pulu verða mjög ofarlega. Ég er ekki alveg búin að fylgjast nógu vel með ungmennunum þarna úti. Hún var mjög góð á Íslandsmótinu og finnst ekkert ólíklegt að hún vinni þetta.  Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli verða i topp baráttunni.

Tölt T2
Við eigum ekki séns og ég held við tökum ekki samanlagðan í fimmgangsgreinum.

Fjórgangur V1
Spái Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli sigri í fjórgangi

Fimmgangur F1
Salka er algjörlega unique og Glódís frábær. Smá pínu hræddur við reynsluleysi parsins en ef allt tekst allt til og Glódís orðinn reynslubolti miðað við aldur og þá á enginn séns í hana.

Skeiðið
Sigríður Ingibjörg og Ylfa frá Miðengi ég sé ekki neinn annan af krökkunum vera fara eins hratt og hún í 100 m. skeiðinu.

Gæðingaskeið PP1
Það er enginn að fara skáka Bensanum. Hann er hundflinkur og þau hafa gert þetta hundrað sinnum.

Samanlagður fjórgangssigurveigari
Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli.

Samanlagður fimmgangssigurveigari
Ekki alveg viss um það.

Áfram Ísland🇮🇸

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link