„Algjört burst frá Íslandi“
Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en mótið byrjar á morgun. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.
Síðasti spámaður dagsins að í bili er Guðmundur Björgvinsson.
Tölt T1
Töltið held ég að verði stórslagur á milli Jóhönnu Margrétar og Sys Pilegaard. Ég held að Jóhanna Margrét vinni þetta því Bárður er betri en Abel á hægu tölti og hún vinnur hraðabreytingarnar líka. Abel fer rosa hratt á greiðu tölti en Jóhanna siglir þessu heim á flottu tölti eftir að hafa verið betri á hægu og hraðabreytingum. Viðar og Þór verða þarna í þriðja sæti.
Tölt T2
Held að þetta verði mótið hennar Christinu Lund. Hún landi titil í fyrsta sinn.
Fjórgangur V1
Var með Önnu Stínu en þar sem þau eru ekki með og ef Frauke vinnur hún hann, annars
Fimmgangur F1
Jón Stenild er búinn að vera í tómu brasi, missandi skeifur undan, held hann verji ekki titilinn. Sara vinnur fimmganginn í hörkubaráttu við Pierre Hoyos
Gæðingaskeið PP1
Rosaleg pressa fyrir Elvar að bera. Við munum hvernig það fór fyrir Magga Skúla síðast, hann átti að vera ósigrandi en Teitur kom og vann hann. Eins var Gummi Einars ósigrandi þegar Teitur vann hann í Danmörku. Það er vont að vera ósigrandi því þá ætla allir að vinna þig en ég vona að þetta lendi með þeim enda hefur Fjalladís aldrei klikkað á spretti. Ég veðja á Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum.
100 m skeið
Teitur ætti að taka þetta með vinstri. Hann á langbesta tíma ársins.
250m skeið
Marcus og Kóngur eru stórhættulegir og verða í efstu þremur sætunum og Alex Fedorov þrælseigur. Ég hef trölltrú á að Hansi stígi upp og landi þessu. Danni er góður en hryssan hefur verið óstabíl. Ég vona að Hansi landi þessu en er skíthræddur um að Alex verði erfiður. Svo er ung stelpa þarna Natalie Fischer sem verður spennandi að fylgjast með. Hún heldur reynsluboltanum Charlottu Cook fyrir utan danska landsliðið og fór á 21,9 á danska mótinu. Magnaður hestur sem hún er á, það verður gaman að fylgjast með henni. Ég veðja á Hansa og Jarl.
Samanlagður fjórgangssigurveigari
Barátta á milli Christinu Lund og Jóhönnu Margrétar. Mun muna örfáum kommum á þeim. Skíthræddur um að það detti Christinu megin. Vona að Jóhanna nái því samt.
Samanlagður fimmgangssigurveigari
Þorgeir vinnur samanlagðan í hörkubaráttu við Erik Andersen
Ungmenni
Tölt T1
Algjört burst frá Íslandi. Herdís vinnur það.
Tölt T2
Ég veit ekkert hver getur unnið það. Alveg blanco.
Fjórgangur V1
Spái Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli sigri í fjórgangi.
Fimmgangur F1
Glódís á Sölku burstar fimmganginn.
Skeiðið
Sigríður Ingibjörg og Ylfa frá Miðengi ég held hún taki báðar greinarnar.
Gæðingaskeið PP1
Benni verður með sýningu í gæðingaskeiðinu og rústar því.
Samanlagður fjórgangssigurveigari
Jón Ársæll og Frár frá Sandhóli verða samanlagðir.
Samanlagður fimmgangssigurveigari
Benni getur alveg landað þessu, ég vona það.
Ég vil óska liðsfélögum mínum alls hins besta á mótinu.
Áfram Ísland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH