Fyrsti dagurinn á HM

  • 8. ágúst 2023
  • Fréttir
Dagskrá dagsins í dag

Þá erum við mætt til Hollands og upp á svæðið sem lítur mjög vel út. Í dag verða sýnd öll kynbótahrossin ásamt því að eftir kvöldmat fer fram keppni í gæðingaskeiði.

Hægt er að fylgjast með niðurstöðum kynbótasýninga inn á HorseDay appinu og auðvitað WorldFeng. Sýnt er beint frá mótinu en hægt er að kaupa aðgang að því inn á Alendis.is.

Dagskrá dagsins í dag
09:00 – 10:30 Kynbótasýning – 5 vetra hryssur og stóðhestar
10:30 – 12:00 Kynbótasýning – 6 vetra hryssur og stóðhestar
12:00 – 13:00 Hádegismatur
13:00 – 14:30 Kynbótasýning – 7 vetra hryssur og stóðhestar
14:30 – 17:30 Æfingatímar á öllum völlum
17:30 – 19:30 Kvöldmatur
19:00 – 20:30 Gæðingaskeið PP1

Íslensku hrossin í braut:
9:20 Ársól og Aðalheiður
10:10 Höfði og Þorgeir
11:10 Hrönn og Jakob
11:30 Geisli og Árni
13:40 Katla og Árni
15:30 Hersir og Teitur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link