Geisli frá Árbæ og Hraði fra Skovhuset efstir 6 vetra stóðhesta
Geisli frá Árbæ knapi Árni Björn Pálsson Ljósmynd: Bert Collet
Geisli frá Árbæ og Hraði fra Skovhused eru efstir og jafnir í flokki 6 vetra stóðhesta eftir að dómum lauk nú fyrir hádegi, en yfirlit fer fram á morgun kl 16:00 eða 14:00 að íslenskum tíma.
Geisli frá Árbæ er undan Ölni frá Akranesi og Gleði frá Árbæ og er ræktaður af Gunnari Andrési Jóhannssyni og Vigdísi Þórarinsdóttur, en í eigu G. Jóhannsson ehf. Hann hlaut 8,76 fyrir sköpulag og 8,38 fyrir hæfileika sem gerir 8,52 í aðaleinkunn. Sýnandi Geisla var Árni Björn Pálsson. Hraði fra Skovhused hlaut 8,29 fyrir sköpulag og 8,64 fyrir hæfileika sem gerir í aðaleinkunn 8,52. Hraði er undan Feyki frá Háholti og Særúnu frá Sauðárkróki. Eigandi og ræktandi er Skovhuset Islandsheste v. Vivi Guul og Sven-Jørn Guul en sýnandi Hraða var Sigurður Óli Kristinsson.
Geisli hélt nokkuð sömu tölum og hann var með í vor en hann hækkaði um hálfan fyrir fet, en eins og áður sagði er yfirlit eftir.
Fjórir hestar voru sýndir í flokki 6 vetra stóðhesta og hér fyrir neðan er röðun þeirra.
| Stóðhestar 6 vetra | |
| 216) DK2017100389 Hraði fra Skovhuset Örmerki: 208213990307088 Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt Ræktandi: Skovhuset Islandsheste v. Vivi Guul og Sven-Jørn Guul Eigandi: Skovhuset Islandsheste v. Vivi Guul og Sven-Jørn Guul F.: IS2006188028 Feykir frá Háholti Ff.: IS1990184730 Andvari frá Ey I Fm.: IS1997288025 Efling frá Háholti M.: IS2008257005 Særún frá Sauðárkróki Mf.: IS1999135519 Aðall frá Nýjabæ Mm.: IS1999257007 Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki Mál (cm): 145 – 131 – 137 – 67 – 141 – 37 – 49 – 43 – 6,8 – 31,0 – 19,0 Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,8 Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,5 = 8,29 Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 9,5 – 8,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 = 8,64 Hægt tölt: 8,0Aðaleinkunn: 8,52 Hæfileikar án skeiðs: 8,48 Aðaleinkunn án skeiðs: 8,42 Sýnandi: Sigurður Óli Kristinsson Þjálfari: |
201) IS2017186936 Geisli frá Árbæ Frostmerki: 7ÁB1 Örmerki: 352206000120212 Litur: 1583 Rauður/milli- stjarna/nös eða tvístj. auk leista eða sokka vagl í auga Ræktandi: Gunnar Andrés Jóhannsson, Vigdís Þórarinsdóttir Eigandi: G. Jóhannsson ehf F.: IS2009135006 Ölnir frá Akranesi Ff.: IS2002136610 Glotti frá Sveinatungu Fm.: IS2000235006 Örk frá Akranesi M.: IS2010286935 Gleði frá Árbæ Mf.: IS2006186936 Vökull frá Árbæ Mm.: IS1990287600 Glás frá Votmúla 1 Mál (cm): 148 – 137 – 141 – 65 – 143 – 38 – 48 – 45 – 6,7 – 30,5 – 18,5 Hófa mál: V.fr.: 8,4 – V.a.: 8,4 Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,0 = 8,76 Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 8,38 Hægt tölt: 8,0Aðaleinkunn: 8,52 Hæfileikar án skeiðs: 8,36 Aðaleinkunn án skeiðs: 8,50 Sýnandi: Árni Björn Pálsson Þjálfari: |
| 237) SE2017122918 Merkúr från Smedjan Örmerki: 977200009070125 Litur: 2544 Brúnn/milli- tvístjörnótt hringeygt eða glaseygt Ræktandi: Jesper Eurenius Eigandi: Jesper Eurenius kt: SE0000117332, Josefin Birkebro kt: SE0000108831 F.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi Ff.: IS1986186055 Orri frá Þúfu í Landeyjum Fm.: IS1996287660 Álfadís frá Selfossi M.: SE2003202373 Minning från Margaretehof Mf.: SE1998109510 Helmingur från Margaretehof Mm.: IS1993284718 Iðunn frá Strandarhöfði Mál (cm): 145 – 131 – 135 – 67 – 142 – 37 – 46 – 40 – 6,5 – 29,0 – 20,0 Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,8 Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 9,0 – 9,5 = 8,29 Hæfileikar: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 = 8,05 Hægt tölt: 8,0Aðaleinkunn: 8,13 Hæfileikar án skeiðs: 8,05 Aðaleinkunn án skeiðs: 8,14 Sýnandi: Josefin Birkebro Þjálfari: |
232) NO2017104027 Golíat fra Dysterud Örmerki: 578098100567225 Litur: 2200 Brúnn/mó- einlitt Ræktandi: Dysterud Breeding AS Eigandi: Dysterud Breeding AS F.: SE2009110329 Viking från Österåker Ff.: IS2000157023 Ísar frá Keldudal Fm.: IS1984257039 Von frá Vindheimum M.: IS2009286938 Garún frá Árbæ Mf.: IS1998184713 Aron frá Strandarhöfði Mm.: IS1990287600 Glás frá Votmúla 1 Mál (cm): 144 – 133 – 137 – 64 – 141 – 40 – 48 – 44 – 6,8 – 29,0 – 20,0 Hófa mál: V.fr.: 8,8 – V.a.: 7,7 Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 7,0 = 8,28 Hæfileikar: 8,0 – 8,5 – 7,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 = 8,02 Hægt tölt: 8,0Aðaleinkunn: 8,11 Hæfileikar án skeiðs: 8,20 Aðaleinkunn án skeiðs: 8,23 Sýnandi: Kristin Elise Andersen Þjálfari: |
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum