Ís-landsmótið á næsta leiti
Ís-landsmótið á Svínavatni verður haldið laugardaginn 28. febrúar og skráning fer að hefjast samkvæmt tilkynningu frá mótshöldurum.
„Ísinn er afbragðs góður og vel lítur út með veður og færi. Skráningar berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 24. febrúar. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og Tölt. Skráningargjald eru 3.500. kr. á skráningu.
Greiðist inn á reikning 0307-13-110240 Kt: 480269-7139 og setja sem skýringu fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH