Stelpurnar stóðu sig vel
Glódís Rún á Sölku frá Efri-Brú Myndir: Bert Collet
Fimmgangurinn hófst í morgun og með engum smá sýningum. Fyrstur í braut var Pierre Sandsten Hoyos á Búa frá Húsavík og áttu þeir góða sýningu en vantaði örlítið upp á skeiðið hjá þeim. Þeir uppskáru 7,20 í einkunn en Pierre og Búi eru taldir eitt af sigurstranglegustu pörunum.
Ríkjandi heimsmeistari í fimmgangi Jón Stenild á Eilífi frá Teglborg minntu heldur betur á sig og áttu stórgóða sýningu, sérstaklega á skeiði, og uppskáru mikið lófatak. Þeir hlutu 7,43 í einkunn og er það efsta sætið eins og er. Aðeins 0,03 lærri er ungmennið okkar Glódís Rún Sigurðardóttir á Sölku frá Efri-Brú en þær áttu frábæra sýningu. Hún er því efst í ungmennaflokki eins og er. Önnur í fullorðinsflokki eins og er síðan Sara Sigurbjörnsdóttir á Flóka frá Oddhóli með 7,37 en það var smá hik á öðrum skeiðsprettinum hjá þeim svo þau eiga inni þar. Það er mjótt á munum og nóg eftir af góðum knöpum.
Niðurstöður eftir fyrstu blokk – Fimmgangur
1 Jón Stenild Eilífur fra Teglborg – DK- 7.43
2 Glódís Rún Sigurðardóttir Salka frá Efri-Brú – IS – 7.40
3 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli – IS – 7.37
4 Pierre Sandsten Hoyos Búi frá Húsavík – AT – 7.20
5 Vicky Eggertsson Gandur vom Sperlinghof – DE – 6.67
6 Christa Rike Barón frá Waldthorst – NL – 6.53
7 Finja Polenz Nótt vom Kronshof – DE – 6.33
8 Arnór Dan Kristinsson Vegur frá Kagaðarhóli – FI – 6.27
9 Jacqueline Schmid-Staub Leiftur frá Lækjarbakka -IT – 6.23
10 Oliver Egli Hákon frá Báreksstöðum – CH -6.10
11 Ester Dahl á Heygum Dalvar frá Dalbæ II – FO – 5.43
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH