Allir íslensku knaparnir í úrslitum
Næst tekur við yfirlit á 5 og 6 vetra hrossunum og síðan fyrri umferð í kappreiðunum.
Efstir eftir forkeppni eru ríkjandi heimsmeistararnir í þessari grein Jón Stenild og Eilífur frá Teglborg en þeir keppa fyrir hönd Danmerkur. Allir íslensku knaparnir náðu inn í úrslit. Önnur eftir forkeppni er Sara Sigurbjörnsdóttir á Flóka frá Oddhóli og þriðji er Máni Hilmarsson á Gljátopp frá Miðhrauni en þeir fengu frá einum dómara 0 fyrir skeið. Máni keppir fyrir Svíþjóð en þrír knapar úr sænska liðinu er í úrslitum.
Benjamín Sandur Ingólfsson á Júní frá Brúnum og Þorgeir Ólafsson á Goðastein frá Haukagili, Hvítársíðu eru jafnir í 9. – 10. sæti og eru því í b úrslitum.
Glódís Rún Sigurðardóttir stendur efst eftir forkeppni á Sölku frá Efri-Brú með 7,40 í einkunn sem er næsta hæsta einkunnina sem gefin var í dag í fimmgangnum. Benedikt Ólafsson er þriðji eftir forkeppni sem er vel að verki staðið en hann og Leira-Björk frá Naustum III hafa ekki keppt í fimmgangi síðan 2019.
Fimmgangur – Niðurstöður – Forkeppni
Fullorðnir
1 Jón Stenild Eilífur fra Teglborg – DK – 7.43
2 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli – IS – 7.37
3 Máni Hilmarson Gljátoppur frá Miðhrauni – SE – 7.33
4 Anne Frank Andresen Vökull frá Leirubakka – DK -7.27
5 Pierre Sandsten Hoyos Búi frá Húsavík – AT – 7.20
6 Caspar Logan Hegardt Oddi från Skeppargården – SE – 7.17
7 Vignir Jonasson Felix från Änghaga – SE – 7.03
8 Erik Andersen Farsæll fra Midtlund – NO – 7.00
9 Benjamín Sandur Ingólfsson Júní frá Brúnum – IS – 6.97
9 Þorgeir Ólafsson Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu – IS -6.97
Ungmenni
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Salka frá Efri-Brú – IS – 7.40
2 Tekla Petersson Vatnadís från Noastallet – SE – 6.90
3 Benedikt Ólafsson Leira-Björk frá Naustum III – IS – 6.50
4 Amelie Segerström Kopar frá Sunnuhvoli – SE – 6.43
5 Finja Polenz Nótt vom Kronshof – DE – 6.33
6 Julie Klomp Ofsi frá Wyler 6.17 – NL –
7 Alma Brandstätter Frigg frá Austurási – AT – 6.00
8 Idunn Marie Pedersen Sólon fra Lysholm – NO – 5.60
9 Ester Dahl á Heygum Dalvar frá Dalbæ II – FO – 5.43
10 Lorraine Essl Silfurtoppur frá Tungu – AT – 5.40
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH